Fimm stærstu lögfræðistofurnar í samanburðinum voru samanlagt með 8,7 milljarða króna í tekjur árið 2025, sem er 9,7% aukning frá fyrra ári. LOGOS var áfram stærsta lögfræðistofan með 2.743 milljónir króna í tekjur. Töluverðar breytingar hafa orðið á lista fimm stærstu stofanna. BBA//Fjeldco tók annað sætið af LEX með 2.038 milljónir króna í tekjur á móti 1.720 milljónum hjá LEX. Tekjur BBA//Fjeldco jukust um 24,2% milli ára á meðan tekjur LEX drógust saman um 4,4%. KPMG Law tók fram úr Landslögum og varð fjórða stærsta lögfræðistofan með 1.136 milljóna króna veltu á móti 1.075 milljóna króna veltu Landslaga. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift