Lex, ein af þremur stærstu lögmannsstofum landsins, hagnaðist um 296 milljónir króna árið 2025, samanborið við 380 milljóna krána hagnað árið áður. Stjórnin félagsins lagði til arðgreiðslu að fjárhæð 266 milljónir króna vegna síðasta rekstrarárs, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Rekstrartekjur stofunnar drógust saman um 4,4% milli ára og námu 1.720 milljónum króna í fyrra. Rekstrarkostnaður nam 1.370 milljónum króna, en þar af voru laun og tengd gjöld 965 milljónir króna. Ársverk voru 49, samanborið við 50 árið áður. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 350 milljónum króna, samanborið við 465 milljónir árið áður. „Áætlanir ársins gengu að hluta til eftir og var rekstrarniðurstaða ársins að mestu samkvæmt áætlunum. Tekjur drógust lítillega saman frá fyrra ári, en á sama tíma hækkuðu rekstrargjöld. Félagið er bjartsýnt á að áætlanir ársins 2026 gangi eftir,“ segir í skýrslu stjórnar. Eignir Lex námu 788 milljónum króna í lok árs 2025 og eigið fé var um 391 milljón króna. Eigendur stofunnar voru 16 í árslok 2025. Hluthafar að atkvæðabæru hlutafé félagsins eru 13 í árslok. LEX hóf þetta ár með því að sækja lögmennina Stefán A. Svensson og Finnur Magnússon, sem komu inn í eigendahóp stofunnar, sem og Sigurbjörn Magnússon sem ráðgjafa. Þeir störfuðu áður hjá Juris. Þar að auki fylgdu lögmennirnir Jóhannes Tómasson, Dagur Fannar Jóhannesson og Þórarinn Þorgeirsson þremenningunum yfir til LEX. Stefán Orri Ólafsson, einn eigenda og stjórnarformaður LEX, og Stefán A. Svensson, nýr eigandi hjá Lex, voru í ítarlegu viðtali hjá Viðskiptablaðinu í janúar síðastliðnum.