Innlent | Morgunblaðið | 15.9.2026 | 23:10 Fénu fækkaði um fimmtung á sex árum Meira en hundrað ár eru síðan þessi hringhlaðna rétt var hlaðin. Hún er skammt frá Skriðuklaustri. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson Skúli Björn Gunnarsson Fljótsdalur Setja bókamerki Haustið er annasamur tími í sveitum landsins með göngum, réttum og sláturtíð. Um helgina var réttað í Fljótsdal í Melarétt, sem er meira en aldargömul hringhlaðin rétt skammt frá Skriðuklaustri. Þar, sem annars staðar á landinu, fækkar sauðfénu sem dregið er í dilka en margir koma til að upplifa réttardaginn. „Það er bara gaman að fólk skuli koma og taka þátt í þessu,“ sagði Þorvarður Ingimarsson, bóndi á Eyrarlandi og réttarstjóri, sem var ánægður með daginn og mætinguna í réttirnar þrátt fyrir svalt veður. Vetrarfóðruðu sauðfé í Fljótsdal hefur fækkað um fimmtung á síðustu sex árum. Þorvarður áætlaði að fjöldinn í réttunum hefði verið á fjórða þúsund, sem er fátt miðað við áður fyrr. Mannfjöldinn var samt álíka og síðustu ár og ungir sem aldnir hjálpuðust að við að draga í sundur féð. Réttastemningin breyst Fréttaritari spjallaði við Ásgeir Jónasson, sem var að líkindum elsti Fljótsdælingurinn í réttunum. Hann sagði margt hafa breyst frá því hann kom fyrst í Melarétt um tíu ára gamall fyrir 75 árum. Þá hefði ekki bara verið fleira fé heldur stemningin allt önnur. Það hefði ekki verið neitt stress við að draga, menn hefðu dreypt á pelum og tekið sér góðan tíma í að spjalla og syngja. Að hans sögn tóku réttirnar þá allan daginn þó að byrjað væri snemma og oft rekið heim í rökkri um kvöldið. Nú er féð komið í réttina um hádegi og allt afstaðið tveimur eða þremur tímum seinna. Farið af stað degi fyrr Að sögn Þorvarðar gengu göngur vel utan þess að eitt sexhjól valt og eyðilagðist en ökumaðurinn slapp lítið meiddur. Vegna veðurspár var farið af stað degi fyrr en vanalega í göngur undir Fellum inn við Snæfell og byrjað á sunnudegi en hvílt á mánudegi á meðan lægðin gekk yfir. Eftir það var blíðskaparveður og smalaðist vel. Tugir taka þátt í göngunum og þó að meira sé orðið smalað á vélfákum en hestum fara alltaf einhverjir ríðandi. Síðan bætast oft í hópinn erlendir ferðamenn þegar rekið er síðasta spölinn til byggða og í réttina. Þorvarður sá til þess að allt gengi vel fyrir sig í réttunum. Féð kemur vænt af fjalli að sögn bænda þó að sleppt hafi verið seinna en oft áður vegna kuldatíðar í vor og þurrka í júlí. „Beitin hefur greinilega verið góð í ágúst eftir að fór að rigna og lömbin eru bara fín heilt yfir,“ sagði Þorvarður réttarstjóri. Seinni gangan í Fljótsdal verður um næstu mánaðamót. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mesti mislingafaraldur í áratugi Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Fénu fækkaði um fimmtung á sex árum Uppátæki Hafþórs á Old Trafford vakti mikla athygli Hæfi nefndarmanna ekki á borði ráðherra Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd Daði: Hefði viljað skríkja og hoppa Frægasti skafl landsins horfinn Afstaða Samkeppniseftirlitsins kom á óvart Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Frægasti skafl landsins horfinn Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Mesti mislingafaraldur í áratugi Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Fénu fækkaði um fimmtung á sex árum Uppátæki Hafþórs á Old Trafford vakti mikla athygli Hæfi nefndarmanna ekki á borði ráðherra Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ákærður í tengslum við banaslys í sumar Frægasti skafl landsins horfinn Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd Fyrsta vindorkuver landsins gangsett Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Frægasti skafl landsins horfinn Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn