Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sex réðust á einn og annar gaf börnum bjór í strætó Þorgerður Anna Gunnarsdóttir RÚV / Alexander Kristjánsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sex í miðbæ Reykjavíkur í dag vegna líkamsárásar gegn einum manni. Sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar, nokkuð særður, að því er segir í dagbók lögreglu. Einn hinna handteknu var vistaður í fangaklefa en látinn laus að skýrslutöku lokinni. Þá fékk lögreglan tilkynningu vegna manns sem var að gefa börnum bjór í strætó. Hann fannst ekki eftir leit lögreglu. Fyrir 45 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Skotar segja ekkert athugavert við lok úrslitaleiksins Jóhann Páll Ástvaldsson Stuðningsmaður Celtic tekinn í burtu af vallarstarfsmönnum. IMAGO Skoska knattspyrnusambandið hefur gefið út yfirlýsingu varðandi endalok úrslitaleiks skosku deildarinnar í gær. Celtic vann 3-1 sigur og þar með titilinn en stuðningsmenn þutu inn á völlinn þegar þeir fögnuðu marki undir leikslok. Leikurinn var hins vegar ekki búinn og töldu margir að enn ætti eftir að leika hluta leiksins. Í yfirlýsingu sambandsins segir að það hafi verið skýrt að dómari leiksins Don Robertson hafi flautað af. Þá fordæmdi sambandið hegðun stuðningsmanna Celtic og minnti á að athæfið hefur verið ólöglegt frá 1991. Sambandið hrósaði Robertson fyrir vel dæmdan leik. Meira má lesa um málið hér. Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær „Það þarf eitthvað mikið að gerast til að þetta fari til fjandans“ Meirihlutaviðræður á Akureyri eru langt á veg komnar þrátt fyrir að mikil dreifing hafi verið á fylgi flokkanna í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Miðflokki verður skipt út fyrir Framsóknarflokk í meirihlutasamstarfi. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Kínverji í gæsluvarðhaldi í Noregi grunaður um njósnir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Salten- og Lofoten dómstóllin úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald. NRK / Ine-Sofie Bruhaug Kínverskur maður hefur verið handtekinn í Noregi grunaður um njósnir fyrir Kína. Maðurinn var handtekinn í Norðurlandi í Noregi á föstudag og var í morgun úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, þar af tvær vikur í einangrun, að því er norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Lögmaður mannsins segir hann ekki hafa játað njósnir í yfirheyrslum lögreglu eða fyrir dómi. Norski herinn hefur verið upplýstur um málið en vill ekki tjá sig frekar. Talsverð uppbygging hernaðarinnviða stendur yfir í Norðurlandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi fá toppeinkunn hjá eftirlitsnefnd Eftirlitsmenn í sjö teymum á vegum Evrópuráðsins fylgdust með framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna. Í áliti nefndarinnar segir að kosningarnar hafi farið fram með skilvirkum og heiðarlegum hætti. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Víkingar tóku toppsætið um stund Jóhann Páll Ástvaldsson Valdimar Þór Ingimundarson á fleygiferð. Mummi Lú Víkingur Reykjavík er komið í toppsæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 0-2 sigur gegn ÍBV. Víkingar fara þar með í 19 stig og eru taplausir eftir sjö leiki. Liðið fór upp fyrir KR sem mætir Fram í kvöld. KR er sem stendur með 18 stig og hefur unnið alla leiki sína. Markalaust var í hálfleik en Óskar Borgþórsson kom Víkingi yfir með skalla eftir fyrirgjöf Elíasar Más Ómarssonar á 51. mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson tvöfaldaði svo forskot Fossvogsliðsins með marki frá miðju eftir að Ari i Haraldstovu Petersen átti misheppnaða hreinsun. ÍBV er sem fyrr í neðsta sæti en liðið er án sigurs að sjö leikjum loknum. Liðið er með eitt stig. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Bruno jafnaði stoðsendingametið Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, jafnaði stoðsendingametið í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Hann, Thierry Henry og Kevin de Bruyne hafa allir gefið tuttugu stoðsendingar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hildi hugnast báðir kostir um meirihlutasamstarf Oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni hugnast bæði meirihlutasamstarf með Miðflokki og með Viðreisn og Framsóknarflokki. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Telur að bæjarbúar hafi ekki kunnað að meta afskipti Kristrúnar Bæjarstjórinn í Kópavogi telur að bæjarbúar hafi ekki kunnað að meta ummæli forsætisráðherra um rekstur sveitarfélagsins. Hún styður samgöngusáttmálann og telur að bæjarbúar vilji halda áfram á sömu braut. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Niðurstöðurnar styrkja hvorki stöðu Kristrúnar né Samfylkingarinnar Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður kosninganna hvorki styrkja stöðu forsætisráðherra né Samfylkingarinnar. Ríkisstjórnarflokkar hafi þó áður sopið stórsjó í sveitarstjórnarkosningum en úrslitin séu góð fyrir formann Sjálfstæðisflokksins. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvar er hreinn meirihluti? Hvar þarf viðræður? Samkvæmt útreikningum fréttastofu nær tæplega helmingur allra sveitarfélaga að mynda stjórn með hreinum meirihluta. Sjálfstæðisflokkurinn nær oftast meirihluta. Í sjö sveitarfélögum fóru fram óbundnar kosningar og í fjórum var sjálfkjörið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stoltur formaður segir Framsókn hafa unnið varnarsigur í borginni Formaður Framsóknarflokksins segist stolt af árangri flokksins í sveitarstjórnarkosningunum. Hún segir hann hafa unnið varnarsigur í Reykjavík, þar sem hann tapaði þremur fulltrúum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Fjórir Rússar drepnir í árásum Úkraínuhers Volodymyr Zelensky segir Úkraínu hafa verið í fullum rétti að svara fyrir árásir Rússa síðustu daga og vikur. Fjórir voru drepnir í árásum sem náðu allt að úthverfum Moskvu. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Xabi Alonso tekur við Chelsea Þorgils Jónsson AP / Pablo Garcia Spánverjinn Xabi Alonso hefur samið við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea um að þjálfa liðið til næstu fjögurra ára. Alonso er einn eftirsóttasti þjálfari Evrópu en var rekinn frá Real Madrid í vetur eftir miklar innanbúðarerjur. Veturinn hefur verið stormasamur hjá Chelsea sem hefur þegar rekið tvo þjálfara og tapaði fyrir Manchester City í bikarúrslitunum í gær. Alonso, sem margir stuðningsmenn Liverpool litu hýru auga til í ljósi misjafns gengis í vetur, tekur við stjórnartaumunum hjá Chelsea í júlí. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sextán nýir borgarfulltrúar í Reykjavík Úrslit sveitarstjórnarkosninga liggja fyrir um land allt. Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í Reykjavík. Miklar hræringar eru á skipan borgarfulltrúa. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kannanir reyndust nálægt niðurstöðum Kannanir Gallup og Maskínu fyrir kosningar fóru nærri endanlegum niðurstöðum. Hægri flokkar bættu við sig en ívið minna reyndist í kjörkössum fyrir vinstri flokka en spáð hafði verið. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bjartsýni í meirihlutaviðræðum á Akureyri Fulltrúar framboða um allt land geta nú farið að huga að meirihlutamyndunum eftir að úrslit úr sveitarstjórnarkosningunum liggja fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn er í lykilstöðu í Reykjavík og víðar en náði líka hreinum meirihluta sums staðar. Miðflokkurinn bætti við sig 17 fulltrúum á landsvísu. Samfylkingin fær fleiri fulltrúa en í kosningunum 2022, en galt afhroð í Reykjavík og Hafnarfirði. Kjörsókn var 66,8% sem er nokkru meira en í sveitarstjórnarkosningunum 2022 þegar 62,2% kusu. Meirihlutaviðræður eru farnar af stað á Akureyri. Hildur Björnsdóttir segir að sér hugnist hvort sem er að mynda meirihluta í Reykjavík með Miðflokki eða Viðreisn og Framsókn. FRÉTTAVAKT Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga: „Það verða breytingar víða“ Töluverðar breytingar verða á stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga eftir niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna í gær. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hæglætis veður í dag og á morgun Ragnar Jón Hrólfsson Hæglætis veður verður víðast hvar á landinu í dag og á morgun. Austlæg eða breytileg vindátt verður ríkjandi. Vindhraði á bilinu 3 til 10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum. Smáskúrir á stöku stað en léttskýjað á Norðurlandi eystra. Seint á morgun þykknar svo upp með lítilsháttar súld austan- og norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 4 til 14 stig og svalast við austurströndina. Rólegasta veður verður á landinu í dag og á morgun. RÚV / Þorgerður Anna Gunnarsdóttir 17. maí 2026 kl. 7:01INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn með flesta sveitarstjórnarmenn og Miðflokkur bætir við sig Seinustu tölur í sveitarstjórnarkosningunum bárust laust fyrir klukkan fimm í nótt. Óhætt er að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé sá stærsti á sveitarstjórnarstiginu eftir kosningarnar. Miðflokkurinn bætti við sig talsverðu fylgi. 17. maí 2026 kl. 6:49INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fjölmenni í miðborginni skemmti sér nokkuð friðsamlega Markús Þ. Þórhallsson Fjölmenni var í miðborg Reykjavíkur í nótt og að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var skemmtanahald friðsamlegt. Lögreglukonur í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Peningakassa var stolið úr verslun í miðborginni og rúður brotnar í öðru húsi til að komast inn. Ekkert bendir til að nokkuð hafi verið tekið þaðan. Maður var handtekinn fyrir innbrot í heimahús miðsvæðis í borginni og tveir menn sem slógust í Hafnarfirði voru handteknir fyrir líkamsárás. Þar í bæ hlupu lögreglumenn uppi réttindalausan ökumann sem reyndi að flýja á sprettinum eftir að för hans var stöðvuð og í Neðra-Breiðholti var bílstjóri handtekinn grunaður um ölvunarvunar- og vímuefnaakstur. Hann var einnig réttindalaus. 17. maí 2026 kl. 4:57INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fyrsta val að halda áfram að vinna saman Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Múlaþingi m