Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá 50 skjálftar í hrinu á Reykjaneshrygg Brynjólfur Þór Guðmundsson Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í tíu í gærkvöld. Hún er um 50 kílómetra suðvestur af Edley. Stærstu skjálftar hrinunnar voru 3,2 og 3,1 að stærð. Alls hafa tæplega 50 skjálftar mælst frá því hrinan hófst. Hlé hafa orðið inn á milli í hrinunni. Síðasta hrina á þessum slóðum varð 25. júlí. Jarðskjálftahrinur eru algengar á flekaskilum sem hryggurinn liggur á. Upptök stærsta jarðskjálftans. RÚV Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Hútar segjast hafa grandað sádiarabískri herþotu Markús Þ. Þórhallsson Uppreisnarsveitir Húta í Jemen segjast hafa skotið niður F15 orrustuþotu sádiarabíska flughersins í morgun með heimagerðri eldflaug. F-15 orrustuþota sömu gerðar og Hútar segjast hafa grandað. EPA / ABIR SULTAN Í yfirlýsingu talsmanns Húta á samfélagsmiðlum var þotunni grandað yfir Marib-héraði þar sem hún var við hernaðaraðgerðir. Hútar saka Sáda um að hafa gert hundruð árása á Jemen í nótt eftir að fjölþjóðaherinn undir þeirra stjórn skaut niður dróna sem sagður var á leið til Mekka, helgustu borgar múslíma, í nótt. Hútar sögðust ekki bera ábyrgð á för drónans. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Maður handtekinn fyrir að beita slökkvitæki sem vopni Markús Þ. Þórhallsson Maður var handtekinn í austurhluta höfuðborgarsvæðisins eftir að hann réðst með slökkvitæki að vopni á mann sem sat í bíl sínum. Lögreglumenn að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Árásarmaðurinn notaði slökkvitækið til að brjóta rúður bílsins og kastaði því loks í ökumanninn, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn aðstoðuðu leigusala við að koma leigjanda burt sem hafði í hótunum við hann. Einnig sinntu lögreglumenn útköllum vegna tónlistarhávaða, þjófnaðar úr fataverslun og innbrots í kaffihús. Tilkynning barst um að gestur veitingahúss í miðborginni gæti ekki greitt reikning sinn og var það mál leyst með vettvangsskýrslu. Einn gisti fangageymslu í morgun. Fyrir 32 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Minnst þrír fórust þegar fréttaþyrla hrapaði í Los Angeles Markús Þ. Þórhallsson Slökkvilið að störfum þar sem þyrlan hrapaði. EPA / CHRIS TORRES Að minnsta kosti þrír fórust þegar þyrla NBC-sjónvarpsstöðvarinnar hrapaði á bílastæði í Los Angeles skammt frá vettvangi strætisvagnaslyss sem einnig kostaði þrjú mannslíf. Slökkvilið borgarinnar segir minnst einn hafa týnt lífi á jörðu niðri þegar þyrlan hrapaði, skall á tveimur gámum milli tveggja verslana þannig að kviknaði í henni. NBC hefur staðfest að það sé þyrla einnar fréttastofu stöðvarinnar sem hrapaði. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tveimur flugvöllum í Póllandi lokað vegna árása Rússa á Úkraínu Markús Þ. Þórhallsson Pólskar F-35 og F-16 orrustuþotur á lofti. EPA / Leszek Szymanski Tveimur flugvöllum í austanverðu Póllandi, í Lublin og Rzeszów, hefur verið lokað vegna eldflaugaárása Rússlandshers á Úkraínu. Þeir eru báðir skammt frá landamærum ríkjanna. Í tilkynningu pólskra flugmálayfirvalda segir að flugherinn sé í viðbragðsstöðu og búi sig undir fyrirbyggjandi aðgerðir. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Forstjóri drónaframleiðslufyrirtækis í felum af ótta við tilræði af hálfu Rússa Forstjóri þýsks sprotafyrirtækis sem framleiðir dróna fyrir Úkraínuher segist hafa neyðst í felur af ótta við morðtilræði af hálfu Rússa. Hann segir þýsk stjórnvöld verða að skilja að raunverulegt stríð sé hafið við Rússland. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi SpaceX hyggst senda Starship á sporbaug í næstu viku Markús Þ. Þórhallsson Bandaríska geimferðafyrirtækið SpaceX hyggst skjóta Starship-eldflaug á loft 22. september ef veður og yfirvöld leyfa. Starship-flaug SpaceX þýtur til himins frá Starbase 24. júlí 2026. EPA / MICHAEL GONZALEZ Í tilkynningu á vef fyrirtækisins segir að ætlunin sé í þessari fjórtándu ferð Starship að hringsóla jörðina sex sinnum í ferð sem ætlað er að standi tíu klukkustundir. Það yrði í fyrsta skipti sem Starship færi á sporbaug og einnig í fyrsta sinn sem farið kemur fyrir Starlink-gervihnöttum, 26 talsins. Flauginni verður skotið frá geimferðastöðinni Starbase Texas í 75 mínútna glugga sem opnast kortér yfir sjö að morgni 22. september að staðartíma. Starship er ætlað að lenda í Kyrrahafinu vestan við Chile að ferðinni lokinni. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandarísk yfirvöld sögð við það að samþykkja 2,8 milljarða dala vopnasölu til Ísraels Bandarísk stjórnvöld eru við það að samþykkja vopnasendingu til Ísraels að verðmæti 2,8 milljarðar dala samkvæmt fréttum þarlendra miðla. Ríkisstjórnin hafi þegar staðfest viðskiptin sem séu þau viðamestu á undanförnum árum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þingmaður Repúblikana vill að varnarmálaráðherrann verði ákærður til embættismissis Þingmaður Repúblikanaflokksins í fulltrúadeildinni krefst þess að varnarmálaráðherra Bandaríkjanna verði kærður og dæmdur til embættismissis. Mjög ólíklegt þykir að tillagan hljóti brautargengi fremur en krafa demókrata um ákæru gegn forsetanum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sádi-Arabía Hútar sverja af sér drónaárás á Mekka Markús Þ. Þórhallsson Embættismaður stjórnmálaskrifstofu uppreisnarsveita Húta í Jemen segir af og frá að dróna hafi verið beint í átt að sádiarabísku borginni Mekka, helgasta stað múslíma. Mekka er helgasta borg múslíma. AP Meintar atlögur Húta að Mekka séu lúin lygi sem enginn trúi lengur. Talsmaður sameinaðra hersveita sem berjast við Húta undir stjórn Sádi Arabíu sagði í færslu á X dróna á vegum Húta hafa verið grandað áður en hann komst inn fyrir lofthelgi borgarinnar, þar sem öll flugumferð er bönnuð. Samtök íslamskra ríkja, OIC, hafa fordæmt árásina þrátt fyrir afneitun Húta og einnig viðvarandi árásir þeirra á Sádi Arabíu. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Öll upphitunaratriði Eds Sheerans hætta eftir að Macklemore var látinn fara Finneas, Lukas Graham, Aaron Rowe og Beoga hætta öll eftir að Macklemore var tekinn af tónleikaferð Ed Sheeran vegna ummæla á sviði um stuðning við Palestínu. Sheeran segir að ákvörðunin hafi ekki verið hans, heldur tónleikahaldarans. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Breyting á áætlun Herjólfs í fyrramálið Markús Þ. Þórhallsson Herjólfur á siglingu í blíðskaparveðri. Aðsend Breyting verður á áætlun Herjólfs í fyrramálið þannig að hann siglir frá Vestmannaeyjum klukkan sjö og frá Landeyjahöfn klukkan kortér fyrir ellefu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Þar segir að ferðir frá Landeyjahöfn klukkan 8:15 og úr Eyjum klukkan 9:30 falli niður. Haft verði samband við farþega til að færa bókanir þeirra. Tilkynnt verði um siglingar það sem eftir lifi dags skömmu eftir klukkan ellefu. Ölduspá fyrir fyrri hluta fimmtudags er óhagstæð fyrir siglingar til og frá Landeyjahöfn og Herjólfur segir að tilkynnt verði um breytingar á áætlun reynist þeirra þörf. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Ásar hafa tíu daga til að bregðast við andmælaskjali Samkeppniseftirlitisins Ásar hafa frest til 25. september til að bregðast við andmælaskjali Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirhugaðra kaupa á öllu hlutafé í Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Eftirlitið segir íhlutun nauðsynlega vegna kaupanna. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Tækniskólaklúðrið – Flokksbróðir fékk milljónir Hafnarfjarðarbær hefur greitt flokksbróður fyrrverandi bæjarstjóra að minnsta kosti 19 milljónir króna fyrir vinnu vegna misheppnaðra lóðarkaupa bæjarins undir Tækniskólann. Ljóst er að nýr Tækniskóli kemur ekki til með að rísa í Hafnarfirði. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Segir unnið hafa verið að því að bola fyrrverandi forstjóra úr starfi Fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga SÁÁ segir stjórn samtakanna hafa þrýst fyrrverandi forstjóra úr starfi og að ekki sé hægt að tryggja faglega þjónustu án þekkingar hennar. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Engin bikarþynnka hjá Blikum Breiðablik sigraði Fram 3-1 í Úlfarsárdal í kvöld í 1. umferð úrslitahluta Bestu deildar karla í fótbolta. Breiðablik varð bikarmeistari á föstudag og fylgdi titlinum eftir með þessum sigri í kvöld. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Gervigreind Telur ekki að framþróun gervigreindar sé upphafið að brattri brekku Forstjóri Fenris Creation, áður CCP, segir að hægt sé að draga ýmsan lærdóm af tölvuárás sem gervigreind á vegum OpenAI gerði af sjálfsdáðum í sumar. Fyrst og fremst þurfi að efla öryggi tölvukerfa. 15. september 2026 kl. 20:57INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hjúkrunarheimili fyrir 99 íbúa rýkur upp Nýtt hjúkrunarheimili rís með ógnarhraða við Hamranes í Hafnarfirði. Fullinnréttuðum einingum verður raðað saman og 99 íbúar flytja inn innan nokkurra mánaða. 15. september 2026 kl. 19:48INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Íhuga að krefja Hafnarfjörð um bætur Tækniskólinn íhugar að krefjast bóta frá Hafnarfjarðarbæ eftir að áform um að reisa nýja byggingu skólans við Flensborgarhöfn runnu út í sandinn. Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar segir að líklega hefði aldrei átt að velja skólanum þá staðsetningu. 15. september 2026 kl. 19:00INNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Herða reglur um úkraínska karlmenn á herskyldualdri Dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp til að herða reglur um dvalarleyfisveitingar til úkraínskra karlmanna á herskyldualdri. 15. september 2026 kl. 18:58INNLENDAR FRÉTTIR Orkumál „Gríðarlega stór dagur í íslenskri orkusögu“ Dagurinn var gríðarlega stór í íslenskri orkusögu, að sögn umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Fyrsta vindorkuver landsins var gangsett í dag. Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun orkuveri verða komið í fullan rekstur fyrir lok 2027. 15. september 2026 kl. 18:09INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Skipuleggjandi alþjóðle