Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Vöruhúsaráðstefna Ofar

Read Full Article →

Vöruhúsaráðstefna Ofar fór fram á Grand Hótel Reykjavík á dögunum þar sem nýjustu lausnir, tækni og þróun í vöruhúsarekstri voru kynntar og farið var yfir hvernig fyrirtæki geta aukið skilvirkni og bætt rekjanleika. Frido Feldmeier, rannsóknarvísindamaður hjá Fraunhofer IML, og Niklas Stråhle frá GBD logistics © Aðsend mynd (AÐSEND) Ráðstefnan, sem haldin var í þriðja sinn, leiddi saman rekstraraðila úr vöruhúsa- og flutningageiranum, sérfræðinga og framleiðendur lausna í vöruhúsa- og flutningageiranum. Adam Holden-Milne fra BarTender. © Aðsend mynd (AÐSEND) Á sýningarsvæði viðburðarins gátu gestir kynnt sér nýjasta búnaðinn og lausnirnar fyrir vöruhús, allt frá hillukerfum og merkingalausnum til sjálfvirknivæðingar og skönnunartækni, ásamt því að geta fengið ráðgjöf út frá eigin rekstri. Andrea og Ólafur Jónsson frá Distica og Sigurjón Hjaltason frá Ofar. © Aðsend mynd (AÐSEND) Dagskráin samanstóð af fyrirlestrum innlendra og erlendra sérfræðinga en meðal fyrirlesara voru fulltrúar frá Brady og Honeywell, BarTender, ProGlove, GBD Logistics og Fraunhofer Institute for Material Flow and Logistics, auk sérfræðinga frá Ofar. Hörður Guðjónsson og Stefán Pálson hjá AZ Medica hjá Brady bás. © Aðsend mynd (AÐSEND) „Það er skýrt að fyrirtæki vilja nýta tæknina betur til að auka skilvirkni, draga úr sóun og styrkja reksturinn. Ráðstefnan er orðin mikilvægur vettvangur þar sem fagfólk getur miðlað reynslu, lært hvert af öðru og fengið innsýn í það sem er að gerast á alþjóðlegum markaði,“ segir Sigurjón Hjaltason, hópstjóri afgreiðslulausna hjá Ofar. Stefanía Fanney Kristínardóttir og Dagný Gunnarsdóttir hjá Parlogis. © Aðsend mynd (AÐSEND) Steindór Arnar Magnússon og Hlynur Benediktson hjá Össur, Adam Holden-Milne, Nuria Garcia hjá BarTender. © Aðsend mynd (AÐSEND)

Share this article