Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icepharma kynnir Kalon til leiks

Read Full Article →

Icepharma kynnti í gær nýtt heiti og ásýnd fyrir heildsölustarfsemi heilsu- og íþróttasviðs fyrirtækisins en nýja vörumerkið fær heitið Kalon. Undir Kalon fellur markaðs- og sölustarf fjölda rótgróinna vörumerkja á sviði heilsu og íþrótta, þar á meðal Nike, NOW, MUNA, Speedo, Sonett og Curaprox. „Kalon er hugsað sem skýr og nútímaleg umgjörð utan um starfsemi sviðsins og styður við vöxt og framtíðarsýn þess. Með sameiginlegri ásýnd einföldum við samskipti við birgja, viðskiptavini og starfsfólk, og styrkjum um leið heildarmyndina svo hvert vörumerki fái enn betur notið sín,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Icepharma. Sjá einnig Móðurfélag Icepharma hagnast um 800 milljónir Heiti vörumerkisins Kalon á rætur að rekja til gríska hugtaksins καλόν sem merkir hið fagra. Hugtakið vísar einnig til innri gæða og heildrænnar fegurðar og endurspeglar nálgun starfseminnar þar sem heilsa, hreyfing og vellíðan fara saman. Vörumerkið var þróað og hannað af Aton þar sem Sigurður Oddsson leiddi hönnunarvinnu teymisins. Sigurður er margverðlaunaður hönnuður og hönnunarstjóri Aton.

Share this article