Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tilboð Reita á Akureyri samþykkt

Read Full Article →

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur samþykkt tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri. Í tilkynningu segir að báðir aðilar hafi þegar undirritað samning um verkefnið. Heimilið, sem á að rúma 140 íbúa, mun rísa við Þursaholt 6 og verður um 9.100 fermetrar að stærð. Greint var frá því í júní að FSRE hefði metið tilboð Reita hagstæðast með tilliti til verðs og afhendingartíma. Í tilkynningu segir þó ekki hvert tilboðsverðið var né hvenær búast megi við verklokum. Að framkvæmdum loknum tekur við leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára. Heilsuvernd mun annast rekstur heimilisins, en félagið rekur nú þegar hjúkrunarheimilin Hlíð og Logmannshlíð á Akureyri. Sjá einnig Reitir reisa hjúkrunarheimili á Akureyri „Það er liður í stefnu okkar um að nýta þá þekkingu, reynslu og bolmagn sem Reitir búa yfir til þess að byggja upp fasteignir sem samfélagið þarfnast,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita. Heimilið verður jafnframt byggt úr blöndu forsmíðaðra og forsteyptra eininga en Reitir segja þá byggingaraðferð stytta framkvæmdatíma og auka sveigjanleika í hönnun. Verkefnið er hluti af áætlun stjórnvalda sem kynnt var í mars um fjölgun hjúkrunarrýma. Samkvæmt henni eiga ríflega 1.500 hjúkrunarrými að verða tekin í notkun fyrir árslok 2030 og er gert ráð fyrir að 90% þeirra verði hrein viðbót við þau rými sem fyrir eru. Í árslok 2025 voru 3.062 hjúkrunarrými á landinu öllu. „Góður gangur hefur verið í verkefnunum sem við höfum sett af stað og það er mikið gleðiefni að sjá langþráð hjúkrunarheimili loksins verða að veruleika,“ segir Inga Sæland ráðherra

Share this article