Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.3.2026 | 8:20 Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Um fimmtán til tuttugu legurými standa enn ónotuð á degi hverjum hjá Klíníkinni í Ármúla. mbl.is/Karítas Tinna Björt Jónsdóttir [email protected] Setja bókamerki Um fimmtán til tuttugu legurými standa enn ónotuð á degi hverjum hjá Klíníkinni í Ármúla, en læknamiðstöðin sendi bæði fulltrúum Landspítala og heilbrigðisráðuneytisins bréf í nóvember og bauð fram aðstoð við að létta álaginu af spítalanum. Að sögn Kristjáns Jóns Jónatanssonar framkvæmdastjóra Klíníkurinnar er samtal í gangi við Sjúkratryggingar Íslands, sem fer með umboð frá ráðuneytinu, um hvernig nýting rýmanna verði útfærð. Hann segist vonast til þess að niðurstaða fari að skýrast í næstu viku. „Staðan er sú að það er samtal í gangi. Auðvitað hefði þetta átt að ganga hraðar, en við erum þó að tala saman og ég er nú að vona að við verðum komin nær einhverri niðurstöðu í vikunni,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið. Undirbúningur tekið tíma Hann segir að á síðustu vikum hafi meðal annars verið rætt hvaða sjúklingahópur myndi nýta legurýmin. „Við höfum verið að tala um hvers konar sjúklingahópur kæmi þá inn í þessi legurými og við erum nokkurn veginn búin að ná niðurstöðu hvað það varðar. Þá vitum við betur hvað við erum að vinna með, því auðvitað skiptir máli hvernig þessi hópur er samansettur þegar kemur að mönnun og hvers lags starfsfólk kemur að verkefninu.“ Að hans sögn er málið því í ákveðnum farvegi þótt undirbúningurinn hafi tekið nokkurn tíma. „Eins og ég segi er þetta búið að taka tíma en það getur gerst þegar menn fara að skoða hlutina betur. Þá er margt sem þarf að huga að.“ Strandar ekki á fjármagni Kristján segir ljóst að samkomulagi af þessu tagi þyrfti að fylgja aukið fjármagn en hann hafi þó ekki fengið vísbendingar um að fjármögnun standi í vegi fyrir framvindu málsins. „Þessu þarf að fylgja eitthvert aukafjármagn, geri ég ráð fyrir. En ég hef ekki heyrt það á þessu stigi máls að það sé einhver fyrirstaða.“ Hann segir næsta skref verða að ræða samninginn sjálfan og endanlegt fyrirkomulag þjónustunnar. „Í næstu viku verður farið að ræða þennan samning og hvernig hann muni líta út. Samtalið hefur hingað til gengið út á hvers lags þjónustu þeir sjúklingahópar sem munu nýta þjónustuna fá.“ Spurður hvort farin sé að myndast skýr mynd af því fyrirkomulagi segir hann svo vera, þótt enn eigi eftir að ganga frá endanlegri niðurstöðu. „Það er komin einhver mynd á það en það er fundur núna eftir helgi þar sem ég geri ráð fyrir að það verði endanlega ákveðið.“ Hann segist jafnframt vona að þá fari einnig að liggja betur fyrir hver tímalínan verði. „Ég vona það. Það kæmi mér ekki á óvart ef drægi til tíðinda í næstu viku.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fimmtán ára stúlka lést í leik Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Lítil skjálftahrina sunnan við Eldey Fimm æðislegar ferðatöskur fyrir fríið Íslendingarnir stálu öllum fyrirsögnunum Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Feimni við að leggja fyrir heimanám „Þetta atvik er ótækt“ Hver er Mojtaba Khamenei? Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Minni væntingar, minni árangur Hitafundur í þinginu í dag Hópferð til Kína til að kynna Ísland Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Fimmtán ára stúlka lést í leik Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Lítil skjálftahrina sunnan við Eldey Fimm æðislegar ferðatöskur fyrir fríið Íslendingarnir stálu öllum fyrirsögnunum Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íranska þjóðin kjósi nýjan leiðtoga – ekki Trump Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Svaðilför á Borgarfirði eystri Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Minni væntingar, minni árangur Hitafundur í þinginu í dag Hópferð til Kína til að kynna Ísland Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason

Share this article