Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.3.2026 | 23:31 | Uppfært 23:53 Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Um fimmtán til tuttugu legurými standa ónotuð á degi hverjum hjá Klíníkinni í Ármúla. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Ekki verður af samstarfi læknamiðstöðvarinnar Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga Íslands um rekstur legurýma, með áherslu á þjónustu við aldraða einstaklinga með gilt færni- og heilsumat. Í tilkynningu Klíníkurinnar, þar sem frá þessu er greint, segir að heilbrigðisráðuneytið og Landspítalinn hafi í viðræðunum lagt áherslu á þjónustu sem var ljóst frá upphafi að yrði erfitt fyrir læknamiðstöðina að veita. Klíníkin sé aftur á móti reiðubúin í annars konar samstarf við heilbrigðisyfirvöld til að bæta skipulag, auka flæði sjúklinga og draga úr álagi á bráðamóttöku og legudeildir Landspítalans. Hefur læknamiðstöðin þegar kynnt þær hugmyndir þar sem áhersla yrði lögð á betri nýtingu legurýma sem fyrir eru. Frétt af mbl.is Legurými staðið til boða í mánuði Áherslan á þjónustu sem erfitt yrði að veita Morgunblaðið greindi frá því í síðasta mánuði að um fimmtán til tuttugu legurými stæðu að jafnaði ónotuð á degi hverjum hjá Klíníkinni. Læknamiðstöðin hafði samband við ráðuneytið og spítalann í nóvember á síðasta ári og bauð fram aðstoð til að draga úr álagi á Landspítalann. Viðræður hófust á milli Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga Íslands í síðasta mánuði, og að því er kemur fram í tilkynningu læknamiðstöðvarinnar voru áherslurnar í viðræðunum á þjónustu sem ljóst var að fæli í sér verulegar áskoranir fyrir Klíníkina að veita, þ.e. þjónustu við aldraða einstaklinga með gilt færni- og heilsumat. Frétt af mbl.is Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Umfangsmiklar breytingar hefðu verið nauðsynlegar „Þjónustan sem um ræðir er að mörgu leyti frábrugðin núverandi starfsemi Klíníkurinnar og kallar á annars konar uppbyggingu, bæði hvað varðar aðbúnað og mannafla. Í viðræðum við fagfólk með reynslu af rekstri hjúkrunarheimila hefur jafnframt komið skýrt fram að umfangsmiklar breytingar á húsnæði væru nauðsynlegar til að uppfylla kröfur og tryggja viðeigandi þjónustu,“ segir í tilkynningunni. „Þá liggur fyrir að slíkt verkefni myndi kalla á verulega fjölgun starfsfólks og setja Klíníkina í samkeppni við Landspítala og hjúkrunarheimili um sérhæft heilbrigðisstarfsfólk. Slík þróun yrði vart til þess fallin að bæta stöðuna í kerfinu í heild, heldur gæti þvert á móti aukið á þann vanda sem þegar er fyrir hendi. Jafnframt er ljóst að um tiltölulega litla rekstrareiningu yrði að ræða sem væri óhagkvæm, bæði fyrir Klíníkina sjálfa og hið opinbera.“ Þess vegna hafi Klíníkin ákveðið að ráðast ekki í þessa starfsemi. Geta tekið við sjúklingum í endurhæfingu Aftur á móti er tekið fram að enn sjái Klíníkin tækifæri í annars konar samstarfi við heilbrigðisyfirvöld sem fæli í sér betri nýtingu legurýma. Hefur læknamiðstöðin kynnt þær hugmyndir. „Þar má meðal annars nefna móttöku sjúklinga sem þarfnast endurhæfingar, þar sem öflug sjúkraþjálfun Klíníkurinnar gæti nýst vel, sem og aukna nýtingu skurðstofa fyrir tilteknar aðgerðir.“ Þannig væri hægt að bæta skipulag og flæði sjúklinga, stytta biðtíma og draga markvisst úr álagi á bráðamóttöku og legudeildir spítalans. „Um leið myndi slík samvinna auka framboð aðgerða og stuðla að betri nýtingu þess mannafla og þeirrar aðstöðu sem þegar er til staðar. Klíníkin er þegar vel í stakk búin til að sinna fjölbreyttri þjónustu innan ýmissa sérgreina, þar á meðal brjóst-, bæklunar-, bak- og kvensjúkdómalækninga, auk almennra skurðlækninga.“ Klíníkin ítrekar að hún sé enn opin fyrir samtali um samstarf sem samræmist betur núverandi starfsemi hennar. „Með slíkri nálgun telur Klíníkin að unnt sé að nýta krafta hennar með markvissari hætti, létta á álagi í heilbrigðiskerfinu og bæta þjónustu við sjúklinga til lengri tíma litið.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fólkaflokkurin sigraði í Færeyjum Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Hvetur Íslendinga til að geyma peningana erlendis Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Ítalía mætir Bosníu í úrslitaleik Umræðan Seinkum upphafi skóladags Þegar sérlausnir verða að sögusögnum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Yfirgefin ökutæki torvelduðu snjómokstur Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Fólkaflokkurin sigraði í Færeyjum Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Hvetur Íslendinga til að geyma peningana erlendis Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Ítalía mætir Bosníu í úrslitaleik Umræðan Seinkum upphafi skóladags Þegar sérlausnir verða að sögusögnum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article