Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

JAC er nýtt bílamerki á Íslandi

Read Full Article →

Suzuki-umboðið hefur kynnt nýtt bílamerki á Íslandi. Um er að ræða kínverska rafbílamerkið JAC Motors en næsta laugardag verða frumsýndir tveir JAC-rafbílar hjá Suzuki í Skeifunni. JAC T9 EV er fjórhjóladrifinn rafmagnaður pallbíll sem er hannaður til að uppfylla allar notkunarþarfir. Hann getur sinnt hlutverki sterkbyggðs atvinnubíls og þægilegs fjölskyldubíls. Segja má að T9 EV sameini afl, drægni og nútímatækni í einum traustum pakka. Hann kemur með 88,02 kW rafhlöðu sem skilar bílnum 300 hestöflum og allt að 435 km drægni. Staðalbúnaður í bílnum býður meðal annars upp á Apple Car Play & Android Auto snjallsímatengingu, fjarlægðarskynjara að framan og aftan, rafdrifið sólþak, blindsvæðisvörn (BSD), vehicle to load (V2L), 360° myndavélakerfi, 10,4'' snertiskjár, álfelgur, forhitun rafhlöðu við lágt hitastig. Sjá einnig Toyota fjölgar rafbílum JAC E30X-fólksbíll verður einnig frumsýndur en hann er nettur og hagkvæmur rafbíll með rúmgóðu innanrými. Bíllinn sameinar góða drægni og þægindi í daglegri notkun. E30X kemur með 51,5 kW rafhlöðu sem skilar bílnum 136 hestöflum og allt að 524 km drægni. Staðalbúnaður í þessum bíl er m.a. Apple CarPlay & Android Auto snjallsímatenging, 8 loftpúðar, 12,8" LED snertiskjár, 360° myndavélakerfi, panorama glerþak, 4 ISOFIX festingar, vegan leðuráklæði, kæling í framsætum, geymsluhólf með kæli- og hitunaraðgerð í armhvílu.

Share this article