Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

JAC komið til Íslands

Read Full Article →

Suzuki-umboðið hefur kynnt nýtt bíla merki á Íslandi. Um er að ræða kínverska rafbílamerkið JAC, en tveir fyrstu JAC- bílarnir voru fumsýndir hjá Suzuki-umboðinu í Skeifunni um síðustu helgi. JAC Motors var stofnað árið 1964 og framleiddi fyrstu áratugina ein göngu vörubíla. Fyrirtækið hefur nú þróast og eflst mikið á síðustu árum og framleiðir nú fólksbíla, vélar og rafhlöður. Í dag er JAC einn umsvifamesti framleiðandi rafbíla í heimi og selur yfir 1,4 milljónir ökutækja á ári. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Hefei í Kína og er með rúmlega 33 þúsund starfsmenn. Velta JAC Motors er meira en 8 milljarðar bandaríkjadala. „Þetta er búinn að vera langur aðdragandi. Þetta er góður og traustur framleiðandi og í eigu kínverska ríkisins. Við fáum bílana á góðu verði, sem skilar sér inn á markaðinn hér heima,“ segir Úlfar Hinriksson, eigandi Suzuki-umboðsins, sem er einnig með umboð fyrir BYD, fyrir utan Suzuki-bíla og nú einnig JAC-bíla. „JAC er ekki þekkt merki í Evrópu en þekkt í Asíu. Framleiðandinn er stærri í atvinnubílum en hefur verið að koma sterkur inn núna undanfarin ár í fólksbílum. Þessir tveir bílar sem við byrjum á að flytja inn núna eru spennandi bílar. Svo býst ég fastlega við að það komi fleiri bílar frá þeim til okkar í kjölfarið.“ JAC E30X-fólksbíll er nettur og hagkvæmur rafbíll með rúmgóðu innanrými. Pallbíll og fólksbíll þeir fyrstu sem koma Fyrstu JAC-bílarnir sem frumsýndir voru um helgina eru rafbílarnir JAC T9 EV og JAC E30X. JAC T9 EV er fjórhjóla drifinn rafmagnaður pallbíll sem hannaður er til að uppfylla allar notkunar þarfir. Hann kemur með 88,02 kW rafhlöðu sem skilar bílnum 300 hestöfl um og allt að 435 km drægni. Einnig verður frumsýndur JAC E30X-fólksbíll, en hann er nettur og hagkvæmur rafbíll með rúmgóðu innanrými. E30X kemur með 51,5 kW rafhlöðu sem skilar bílnum 136 hestöflum og allt að 524 km drægni. Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar . Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article