Umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið heldur áfram í dag. Miðað við mælendaskrána verður að teljast hæpið að umræðan klárist í dag. Það þýðir að ekki verður hægt að klára umræðuna fyrr en í næstu viku því á morgun og fimmtudaginn eru nefndardagar og þar af leiðandi engir þingfundir. Tuttugu þingmenn eru enn á mælendaskrá í fyrri umferð þar sem þingmenn geta talað í tíu mínútur. Í síðari umferð fá þingmenn að tala í fimm mínútur og eru þá andsvör ekki tekin með. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa verið duglegir við að halda fjarveru forsætisráðherra og barna- og menntamálaráðherra á lofti í umræðunni. Sú síðarnefnda, Inga Sæland, er stödd erlendis í opinberum erindagjörðum en fyrir utan fyrirspurnartíma í gær hefur Kristrún Frostadóttir ekki tekið þátt í umræðunni. Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, tók þann þráð aftur upp í umræðum um störf þingsins. Sagðist hann hafa samúð með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem ekki bara stóð ein ráðherra í ræðustól í umræðunni, heldur hafi hún verið eini formaður stjórnarflokkanna í Silfrinu í gær. „Það var sannast sagna átakanlegt að horfa á Þorgerði Katrínu skilda eina eftir á móti öllum að tala fyrir þessari vondu hugmynd.“