Ein breyting hefur verið gerð á hóp íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta. Liðið mætir Serbíu í undankeppni Evrópumótsins árið 2027. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir úr KR kemur inn í stað Ástu Júlíu Grímsdóttur sem leikur með Val. Ásta meiddist á ökkla en vonast er til að hún verði klár í slaginn gegn Portúgal 17. mars. Kristrún flaug út til Serbíu í morgun en leikið er í Novi Sad. Leikurinn gegn Serbíu er á morgun klukkan 17:00 og er sýndur á RÚV. Kristrún er með 6,3 stig og 10,2 fráköst auk 3,2 stoðsendinga að meðaltali með KR í vetur. Hún leikur sem miðherji og er 22 ára. EM fer fram árið 2027 í júní og er leikið í Belgíu, Finnlandi, Litháen og Svíþjóð. Staðan í riðlinum Serbía - 4 stig - +51 í stigaskori Portúgal - 3 stig - +4 í stigaskori Ísland - 2 stig - mínus 55 í stigaskori Tvö efstu liðin fara áfram í næsta fasa undankeppninnar. Ísland gæti einnig farið áfram sem eitt af fjórum bestu liðunum í þriðja sæti. Hópur Íslands Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík Danielle Rodriguez – Njarðvík Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík Kolbrún María Ármannsdóttir – TK Hannover Luchse (Þýskaland) Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík Sigrún Björk Ólafsdóttir – Haukar Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur