Íslenska kvennalandsliðið mætir Serbíu í dag í undankeppni EM 2027 í körfubolta. Leikið er ytra, í borginni Novi Sad. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er í beinni útsendingu á RÚV. Stofan hefst klukkan 16:35. EM fer fram árið 2027 í júní og er leikið í Belgíu, Finnlandi, Litháen og Svíþjóð. Staðan í riðlinum Serbía - 4 stig - +51 í stigaskori Portúgal - 3 stig - +4 í stigaskori Ísland - 2 stig - mínus 55 í stigaskori Tvö efstu liðin fara áfram í næsta fasa undankeppninnar. Ísland gæti einnig farið áfram sem eitt af fjórum bestu liðunum í þriðja sæti. Hópur Íslands Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík Danielle Rodriguez – Njarðvík Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík Kolbrún María Ármannsdóttir – TK Hannover Luchse (Þýskaland) Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík Sigrún Björk Ólafsdóttir – Haukar Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur