Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.3.2026 | 22:50 Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Niðurrif á Fannborgarreit er hafið. mbl.is/Ólafur Árdal Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Gert er ráð fyrir 364 íbúðum, verslun og þjónustu á jarðhæðum og bílakjallara á tveimur hæðum með 507 bílastæðum á Fannborgarreit og Traðarreit-vestri, samtals um þrjúþúsund fermetrum í nýjum miðbæ í Kópavogi. Niðurrif á Fannborgarreit er hafið eftir að kæru húsfélagsins í Hamraborg 10 var vísað frá. Húsfélagið sagði framkvæmdina ekki standast lög sem kveða á um að bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk skuli ekki vera í meira en 25 metra fjarlægð frá aðalinngangi bygginga. Búið er að veita niðurrifsleyfi fyrir Fannborg 2 og gera má ráð fyrir að áform um niðurrif á Fannborg 4 og 6 fari inn á afgreiðslufund byggingarfulltrúa einhvern tímann á næstu fjórum vikum, að því er fram kemur í skriflegu svari Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi, við fyrirspurn mbl.is. Frétt af mbl.is Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Svæðið tilbúð að fullu vorið 2030 Samkvæmt framkvæmdaáætlun er gert ráð fyrir að niðurrifi ljúki um miðjan maí og að jarðvinna hefjist í lok maí. Þá er gert ráð fyrir að fyrsti fasi uppbyggingar hefjist um miðjan júlí. Áætlað er að uppbyggingu á Fannborgarreit verði lokið í lok árs 2029 en á svæðinu í heild, að Traðarreit-vestri meðtöldum, verði uppbyggingu að fullu lokið í maí 2030. Eigandi Fannborgarreits er Árkór ehf. sem aftur er í eigu Guðna Rafns Eiríkssonar, Gísla Steinars Gíslasonar og Jóns Helga Sen Erlendssonar. Mannverk sér um framkvæmdir á Fannborgarreit en Sváfnir Gíslason, stjórnarformaður Árkórs, er framkvæmdastjóri fjármála hjá Mannverki. Eigandi Traðarreits-vestri er Jáverk ehf. og sér félagið einnig um framkvæmdir á reitnum. Frétt af mbl.is Hófu ólöglegt niðurrif á byggingu í Kópavogi Bílastæðamál leyst í hverjum fasa fyrir sig Ásdís segir bílastæði á svæðinu staðsett á bæjarlandi og að þeim verði fundinn nýr staður eftir því sem verkefnið þróast. Bílastæðum fyrir hreyfihamlaða á svæðinu verði fundinn staður í sambærilegum fjarlægðum og nú er. Einhver stæði verða í 25 metra fjarlægð eða styttri en önnur í aðeins meiri fjarlægð, eins og raunin sé í dag á svæðinu. Í svari sínu við fyrirspurn mbl.is segir bæjarstjórinn að Kópavogsbæ sé skylt að fara eftir gildandi lögum og reglum og að það sama gildi um framkvæmdaraðila. Ásdís segir að fyrir liggi ítarleg aðkomuáætlun þar sem aðkoma og bílastæðamál séu leyst í hverjum framkvæmdarfasa fyrir sig. Þá vill hún ítreka að um framkvæmdaáætlun sé að ræða sem geti tekið einhverjum breytingum. Þó sé lögð áhersla á að um óverulegar breytingar á framkvæmdaráætlun verði þá að ræða. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. mbl.is/María Matthíasdóttir „Aðaláherslan er að þeir fasar sem valda hvað mestu raski taki eins stuttan tíma og mögulegt er. Við munum reyna eftir fremsta megni að lágmarka allt rask gagnvart íbúum meðan á framkvæmdum stendur.“ Ásdís segir mikilvægt að hafa í huga að sú uppbygging sem framundan er verði mikil upplyfting fyrir svæðið – ekki síst þá íbúa sem þar búa. „Kópavogsbúar hafa lengið beðið eftir miðbæ með fjölbreyttri verslun og þjónustu og loksins er sá miðbær í mótun og verður tilbúinn á árinu 2030.“ Frétt af mbl.is Staðfesta byggingaráform í miðbænum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum Óvíst hvort varðturnar lögreglunnar rísi á ný Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Norðmennirnir áfram í draumalandi Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum Óvíst hvort varðturnar lögreglunnar rísi á ný Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Norðmennirnir áfram í draumalandi Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýrt umboð skiptir máli Segja víðtækar árásir hafnar Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article