Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.4.2026 | 22:07 Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Talsverð hætta skapaðist fyrir vegfarendur um Fannborg í Kópavogi þegar bárujárnsbrakið fór að fjúka. Ljósmynd/Hákon Gunnarsson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Svefnherbergisrúða og svalaþil í húsi eldri borgara við Fannborg í Kópavogi urðu fyrir miklum skemmdum þegar bárujárn og annað brak úr ófrágengnu húsi sem verið er að rífa niður fauk utan í það. Svo virðist sem engar varúðarráðstafanir hafi verið gerðar til þess að koma í veg fyrir að brak úr húsinu fyki þrátt fyrir að gul viðvörun væri í aðsigi. Íbúar segja frágang verktakans bera merki um alvarlegt kæruleysi og kalla eftir því að svarað verði fyrir tjónið. „Það er eins og þeir hafi hreinlega ekki kíkt inn á vedur.is og athugað hvernig veðrið væri, og svo byrjar náttúrulega bara að blása eins og er búið að vera að vara við í heila viku,“ segir Kolbeinn Reynisson, bæjarfulltrúi Vina Kópavogs, í samtali við mbl.is. Í upphafi árs voru niðurrifsframkvæmdir á húsinu stöðvaðar skyndilega þegar í ljós kom að engar heimildir hafi verið til staðar fyrir niðurrifinu. Frétt af mbl.is Hófu ólöglegt niðurrif á byggingu í Kópavogi Reyndu að laga en gerðu illt verra Niðurrifið á húsinu er búið að standa í einhverjar vikur að sögn Kolbeins, en framkvæmdir voru stöðvaðar um páskana þó enn ætti eftir að rífa meira en hálft húsið niður og húsið var skilið eftir „galopið“. Kolbeinn telur að verktakarnir hafi fengið tilkynningu þegar fyrstu bárujárnsplöturnar byrjuðu að fjúka og brutu svefnherbergisrúðu og svalaþil í næsta húsi, Fannarborg 8, sem er hús fyrir eldri borgara. Svalarþilið er illa leikið eftir brakið. Ljósmynd/Hákon Gunnarsson „Þá held ég að þeir hafi farið þangað og ætlað eitthvað að reyna að laga þetta, en eins og sést þarna á myndskeiðinu gerðu þeir bara illt verra,“ segir Kolbeinn. Engar varúðarráðstafanir hafi verið gerðar til þess að vernda gangandi vegfarendur og farartæki sem kynnu að eiga leið um götuna, og ef marka má frásagnir viðstaddra áttu margir fótum fjör að launa á flótta undan bárujárnsbraki úr húsinu. „Nú er skaðinn skeður og húsið skemmt, en það sem manni finnst alvarlegast er sú hætta sem skapaðist þarna á þessum tímapunkti, “ segir Kolbeinn. „Mér finnst ákveðinn kæruleysisbragur yfir þessu. “ Svefnherbergisglugginn brotnaði þegar bárujárnsbrakið lenti á honum. Ljósmynd/Hákon Gunnarsson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR jafnaði gegn meisturunum Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Kona er brjáuð út í manninn sinn og leitar ráða „Allt í lagi þegar fólk hefur þær skoðanir“ „Miðvikudagsfílíngur á þessu hjá okkur“ Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líkur á eldingum í kvöld Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Öllum leiðum út úr borginni lokað Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Bíll valt á Hellisheiði Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Líkur á eldingum í kvöld Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » KR jafnaði gegn meisturunum Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Kona er brjáuð út í manninn sinn og leitar ráða „Allt í lagi þegar fólk hefur þær skoðanir“ „Miðvikudagsfílíngur á þessu hjá okkur“ Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Féll af hestbaki og flutt með sjúkrabíl Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Það magnaðasta sem hægt er að sjá Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Bíll valt á Hellisheiði Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Líkur á eldingum í kvöld Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article