Innlent | Morgunblaðið | 2.3.2026 | 6:32 Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Fannborg 2 hýsti áður Félagsheimili Kópavogs, Kópavogsbíó og bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar. mbl.is/Ólafur Árdal Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Niðurrif er hafið á Fannborg 2 eftir að kæru húsfélagsins í Hamraborg 10 var vísað frá. Húsfélagið hafði kært ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogs um að samþykkja umsókn um niðurrifið. Greint er frá þessu í úrskurði umhverfis- og auðlindanefndar frá 20. febrúar. Til stendur að byggja fjölbýlishús á lóðum Fannborgar 2, 4 og 6. Húsfélagið sagði framkvæmdina ekki standast lög sem kveði á um að bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk skuli ekki vera í meira en 25 metra fjarlægð frá aðalinngangi bygginga. Þótti kærendum skipulagsyfirvöld ekki hafa sýnt fram á að framkvæmdaaðilar gætu virt þá reglu en þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru í næsta nágrenni. Málsrök Kópavogsbæjar voru að reglugerðin ætti einungis við um afstaðnar framkvæmdir. Aðgengi íbúa geti tekið breytingum á framkvæmdatíma og íbúar verði því að sætta sig við tímabundin óþægindi. Einnig segir að aðkoma félagsmanna kæranda muni ekkert breytast meðan á niðurrifinu stendur. Ekki er um alvarlegt rask á hagsmunum íbúa að ræða samkvæmt niðurstöðu úrskurðarnefndar sem vísar til þess að um tímabundið ástand sé að ræða. Fyrirliggjandi gögn bendi til þess að niðurrifið muni taka einn og hálfan mánuð. Ekkert segir um framkvæmdatíma eftir niðurrif en bent er á að fyrirliggjandi aðkomuáætlun sé ætlað að leysa úr hugsanlegum áskorunum á þeim tíma. Niðurstaðan er sú að meðlimir húsfélagsins hafi ekki lögvarðra hagsmuna að gæta og kærumálinu því vísað frá. Kópavogsbíó er meðal þess sem húsið hýsti á árum áður. Þar var kvikmyndahús og áhugamannaleikhús en upphaflega var það félagsheimili Kópavogs frá 1958. Tónleikahald var einnig í húsinu sem varð miðpunktur pönksenunnar í Kópavogi. Fræbbblarnir héldu þar fyrstu pönktónleikana hér á landi. Árin 1994-2017 komu bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar í húsið en talsverðar breytingar voru þá gerðar á því. Rakaskemmdir uppgötvuðust síðar í húsinu, árið 2019. Fannborgarhúsin eiga að víkja fyrir fjölbýlishúsum. Húsfélag í Hamraborg kærði niðurrifið og taldi það brjóta lög um aðgengi íbúa. mbl.is/Ólafur Árdal Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lærði lexíu af íslenskum ráðherra Nýtt flúr Beckham vekur athygli Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Vikumatseðillinn: Mexíkósk veisla fyrir þá sem vilja meira fjör í vikuna Tugir látnir eftir áraás Ísraels á Líbanon Umræðan „Planið er að virka“ Keilisnes – iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslamska lýðveldið muni berjast til síðasta blóðdropa Skipti um kyn í miðju matarboði Drónaskynjarar orðnir algengir Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Lýsingu breytt á Austurvelli „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Skipti um kyn í miðju matarboði Óveður á austurhelmingi landsins Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Lærði lexíu af íslenskum ráðherra Nýtt flúr Beckham vekur athygli Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Vikumatseðillinn: Mexíkósk veisla fyrir þá sem vilja meira fjör í vikuna Tugir látnir eftir áraás Ísraels á Líbanon Umræðan „Planið er að virka“ Keilisnes – iðnaður eða íbúðabyggð með sjávarútsýni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Khamenei látinn Myndskeið: Íranar fagna falli Khameneis Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ 763 efnaskiptaaðgerðir frá 2022 Lýsingu breytt á Austurvelli „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Skipti um kyn í miðju matarboði Óveður á austurhelmingi landsins Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga