Í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins er ítarleg umfjöllun um fjárframlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka. Flokkarnir fengu alls úthlutað tæplega 11,8 milljörðum króna úr ríkissjóði, á verðlagi dagsins í dag, á tímabilinu 2010-2026. Sósíalistaflokkurinn alls fengið 136 milljónir króna í framlag á síðasta kjörtímabili og því sem nú stendur yfir, þrátt fyrir að hafa tvær þingkosningar í röð ekki náð manni inn á þing. Í bæði skiptin hefur flokkurinn náð að komast yfir 2,5% þröskuldinn. Ásamt Sósíalistum munu Píratar þiggja ríkisframlög án þess að vera með mann á þingi á yfirstandandi kjörtímabili. Á umræddu tímabili hafa Vinstri græn fengið rúmlega 1,7 milljarða króna úr ríkissjóði. Flokkurinn fékk þó ekki framlög úr ríkissjóði í ár né í fyrra og mun ekki hljóta frekari framlög á næstu tveimur árum hið minnsta. Flokkurinn beið sem kunnugt er afhroð í síðustu þingkosningum og náði ekki einu sinni 2,5% markinu til að eiga rétt á framlagi. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .