Íslenskir stjórnmálaflokkar fengu samtals úthlutað tæplega 11,8 milljörðum króna úr ríkissjóði, á verðlagi dagsins í dag, á tímabilinu 2010-2026. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þar til í síðustu alþingiskosningum verið stærsti flokkur landsins á tímabilinu. Flokkurinn hefur þar af leiðandi fengið hæsta úthlutun úr ríkissjóði á tímabilinu, eða alls tæplega 2,9 milljarða króna á verðlagi dagsins í dag. Samfylkingin, sem er í dag stærsti flokkurinn á þingi, hefur fengið næstmest í sinn hlut, eða rétt tæplega í 1,9 milljarða króna. Á ári hverju fá stjórnmálaflokkar úthlutun úr ríkissjóði, en kveðið er á um þetta í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka. Í lögunum er að finna reglur um framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi. Þar kemur fram að stjórnmálasamtök sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn á þing eigi rétt á 12 milljóna króna grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju. Þá fá stjórnmálasamtök sem fengið hafa að minnsta kosti einn mann kjörinn eða hlotið hafa að lágmarki 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun í fjárlögum hverju sinni. Skilyrði fyrir úthlutun á fé úr ríkissjóði sem og frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð á stjórnmálasamtakaskrá, að þau hafi uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda og að ársreikningur þeirra hafi verið birtur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið úthlutað 50% meira en Samfylkingin, sem hefur eins og fyrr segir fengið næsthæstu úthlutunina á tímabilinu. Fast á hæla Samfylkingarinnar koma Framsóknarflokkur og Vinstri græn með rétt rúmlega 1,7 milljarða króna. Vinstri græn munu þó ekki hljóta frekari framlög úr ríkissjóði á næstu tveimur árum hið minnsta, þar sem flokkurinn beið afhroð í síðustu þingkosningum og náði ekki einu sinni 2,5% markinu til að eiga rétt á framlagi. Aðrir flokkar sem hafa setið á Alþingi á undanförnum árum hafa fengið nokkru lægri úthlutanir. Píratar og Miðflokkurinn hafa fengið 783 milljónir, Viðreisn 781 milljón og Flokkur fólksins 744 milljónir. Þá hefur Sósíalistaflokkurinn alls fengið 136 milljónir króna í framlag á síðasta kjörtímabili og því sem nú stendur yfir, þrátt fyrir að hafa tvær þingkosningar í röð ekki náð manni inn á þing. Í bæði skiptin hefur flokkurinn náð að komast yfir 2,5% þröskuldinn. Ásamt Sósíalistum munu Píratar þiggja ríkisframlög án þess að vera með mann á þingi á yfirstandandi kjörtímabili. Aðrir flokkar sem hafa fallið af þingi þáðu einnig framlög á tímabilinu. Borgarahreyfingin fékk úthlutað 162 milljónum og Björt framtíð 146 milljónum. Loks fékk Dögun 43 milljónir og Flokkur heimilanna 42 milljónir. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .