Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.3.2026 | 12:31 Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Herdís Dröfn Fjeldsted er forstjóri Sýnar. Samsett mynd Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Þekking Íslendinga á mikilvægi fjölmiðla ábótavant „Stundum hef ég þurft að minna mig á æðruleysið“ Þórhallur gagnrýnir tillögur ráðherra Snorri Másson: Aðgerðirnar aðeins bútasaumur Dæmin sýni fram á hættuna » Fleiri tengdar fréttir Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um framtíð sjónvarpsfrétta en sá hluti fréttastofunnar fylgir ekki með hugsanlegum kaupum Símans á miðlum félagsins. Þá hafi engar ákvarðanir verið teknar um breytingar almennt á sjónvarpshluta miðilsins, þar á meðal íþróttastöðvunum. „Við höldum áfram okkar íþróttastöðvum og það er engin ákvörðun á þessum tímapunkti að breyta neinu hvað það varðar,“ segir hún í samtali við mbl.is. Að sögn Herdísar verða engar mannabreytingar tengdar sölunni hjá félaginu á næstunni. Viðræður við Símann og svo hugsanleg kaup geti tekið sex til tólf mánuði, og jafnvel lengur. „Þetta getur tekið nokkurn tíma þannig það eru engar breytingar á starfsemi félagsins. Við höldum áfram og rekum félagið eins og við höfum áður gert næstu mánuðina.“ Frétt af mbl.is Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Starfsmenn að melta fréttirnar Fundur var haldinn í morgun með starfsfólki eftir að tilkynning um viðræðurnar var gefin út. „Almennt séð held ég að fólk sé að melta þetta. Þetta er stór ákvörðun og það eru margar tilfinningar sem koma upp.“ Óttist þið að starfsfólk segi upp við þessar fréttir? „Starfsemin er ekkert að breytast næstu mánuðina. Þetta getur tekið sex til tólf mánuði. Ég get svo sem ekki svarað fyrir það.“ Frétt af mbl.is Síminn að kaupa miðla Sýnar Endurskipuleggja rekstur Sýnar Hvenær kom þetta samtal til, á milli Sýnar og Símans? „Það er mjög nýlegt. Í lok síðasta árs sendum við út tilkynningu og inni í þeirri tilkynningu var tjáð að stjórn Sýnar væri að skoða rekstrarmódel fjölmiðlahluta miðilsins. Í kjölfarið kemur tilboð frá Símanum, og nú hefur stjórn Sýnar tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna á grundvelli skilmálaskjals – sem er nú samþykkt.“ Nú hefst vinna við áreiðanleikakönnun, síðar verður gerður kaupsamningur og í framhaldinu verður málið í höndum eftirlitsaðila. Hvers vegna að fara þá leið að selja vef- og útvarpsmiðla Sýnar? „Ástæðan er sú að við erum að horfa til þess að endurskipuleggja rekstur Sýnar með því markmiði að einfalda rekstur félagsins og styrkja rekstrargrundvöll og fjárhagsstöðu.“ Frétt af mbl.is Sýn í víðtækri endurskoðun Ræða við Rúv um sjónvarpsfélag Spurð um sjónvarpshluta Sýnar og hvort einhverjar breytingar séu í farvatninu, segir Herdís engar ákvarðanir hafa verið teknar í þeim efnum. „Það er ekki hluti af þessari sölu til Símans.“ Ætlið þið að halda áfram að reka sjónvarpsstöðvar ef kaupin ganga í gegn? „Það hefur engin önnur ákvörðun verið tekin en að ganga til viðræðna við Símann um sölu á þessum miðlum. Sjónvarps- og fjarskiptarekstur er ekki hluti af þessu sölu og er því áfram í rekstri hjá félaginu.“ Frétt af mbl.is Sýn tekur stórt stökk en Síminn lækkar lítillega Hún segir miklar áskoranir í fjölmiðlaumhverfinu á Íslandi, og þá aðallega vegna ytri þátta. Í því samhengi nefnir hún meðal annars erlendar streymisveitur, samfélagsmiðlar sem taka til sín auglýsingatekjur og svo auðvitað ólöglegt niðurhal á efni. „Við höfum líka talað fyrir því að aðilar á markaði komi saman og myndi eins konar sjónvarpsfélag, eða samstarf á milli aðila sem eru með sjónvarpsinnviði,“ segir Herdís. Sýn hafi rætt þessa hugmynd við Ríkisútvarpið meðal annars. Fyrsta skrefið að einfalda reksturinn Herdís segir félagið nú horfa til þess hvernig hægt sé að vaxa og efla það til framtíðar. Og hvernig sjáið þið fyrir ykkur að vaxa og efla félagið til framtíðar þegar búið er að taka út vef- og útvarpsmiðla? Eru einhverjar nýjungar í kortunum eða ætlið þið að efla þá innviði sem þið eruð þegar með? „Fyrsta skrefið er að einfalda reksturinn með þessari ákvörðun, við erum að styrkja fjárhagsstöðu félagsins. Svo opnast auðvitað ný tækifæri líka og við munum skoða það í framhaldinu.“ Öflugt fólk og vörumerki Aðskilnaður sjónvarpsfrétta Sýnar annars vegar og Vísis hins vegar vekur óneitanlega upp margar spurningar. Blaðamenn fréttastofunnar vinna fyrir báða miðla og eru margar af stærstu fréttum Vísis yfir daginn unnar fyrir sjónvarpið. Þá er Vísir einnig vettvangur fyrir klippur úr þáttum sem sýndir eru á sjónvarpsstöðvum Sýnar. Spurð hvort það hafi komið til tals að Síminn verði með kvöldfréttir í sjónvarpi, ítrekar Herdís að kvöldfréttir Sýnar séu ekki hluti af pakkanum sem sé nú til sölu. En þið eruð með blaðamenn sem vinna fyrir bæði Vísi og kvöldfréttirnar. Hvaða stöðu eru viðkomandi með ef það á að skipta þessu upp? „Það verður hluti af ferlinu að fara í gegnum það. En þau þurfa auðvitað öflugt starfsfólk. Það er auðvitað það sem þessi eining snýst um, þetta er öflugt fólk og öflugt vörumerki. Þau eru að kaupa mjög flotta starfsemi í vefmiðlum og útvarpi og þau þurfa fólkið til að geta haldið því áfram.“ Sjáið þið þá fyrir ykkur að allir fréttamennirnir fari yfir til Símans? „Það verður hluti af ferlinu að fara í gegnum það. Allir sem reka fyrirtæki þurfa öflugt starfsfólk. Það er auðvitað það sem þessi eining snýst um, öflugt fólk og sterk vörumerki. Síminn er að kaupa mjög flotta starfsemi í vefmiðlum og útvarpi og mannauðurinn er mikilvægur í því samhengi.“ Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Þekking Íslendinga á mikilvægi fjölmiðla ábótavant „Stundum hef ég þurft að minna mig á æðruleysið“ Þórhallur gagnrýnir tillögur ráðherra Snorri Másson: Aðgerðirnar aðeins bútasaumur Dæmin sýni fram á hættuna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mestu búsifjar sögunnar í olíuflutningum Stór skjálfti í Torfajökli Kveður Keflavík og eftirmaðurinn fundinn Nærri hundrað börn verið drepin í mars „Að vera mannlegur virkar alls staðar“ Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Ferðamenn lentu á kafi í vatni Vara við árásum á hafnir við Hormússund Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Mestu búsifjar sögunnar í olíuflutningum Stór skjálfti í Torfajökli Kveður Keflavík og eftirmaðurinn fundinn Nærri hundrað börn verið drepin í mars „Að vera mannlegur virkar alls staðar“ Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article