Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

480 fá endurgreiðslur vegna tveggja ferðastofa

Read Full Article →

Hátt í fimm hundruð viðskiptavinir ferðaskrifstofanna Tango Travel og Komdu út fá ferðir sem aldrei voru farnar endurgreiddar. Bæði fyrirtækin seldu ferðir sem byggðu á því að flogið væri út og heim með Play. Þegar flugfélagið varð gjaldþrota gátu ferðaskrifstofurnar ekki staðið við sitt. Ferðatryggingasjóður byrjaði í vikunni að endurgreiða fólki kröfur vegna ferða sem það hafði keypt hjá félögunum tveimur. Sjóðurinn gerir ráð fyrir að ljúka endurgreiðslum á næstu tveimur til þremur vikum. Ekki liggur fyrir hversu háar endurgreiðslurnar verða þar sem enn er verið að vinna úr kröfum. Alls sóttu 284 um endurgreiðslu vegna Tango Travel og 196 vegna Komdu út, sem seldi golfferðir undir heitinu Eagle golfferðir.

Share this article