Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Endurgreiðslur hófust í vikunni

Read Full Article →

Viðskiptavinir ferðaskrifstofanna Tango Travel og Komdu út byrjuðu að fá endurgreitt í vikunni en ferðaskrifstofuleyfi félaganna voru felld niður í desember síðastliðnum. Í tilkynningu segir að bæði félögin hafi verið aðilar að Ferðatryggingasjóði. Hátt í 196 kröfur bárust vegna Komdu út ehf. og 284 kröfur vegna Tango Travel ehf. en ógjaldfærni félaganna hafði áhrif á ferðaáætlanir tæplega 2.000 manns. „Ferðatryggingasjóður er sameiginlegur sjóður ferðaskrifstofa sem starfa með leyfi á Íslandi og er ætlað að tryggja að ferðamenn njóti verndar ef ferðaskrifstofa getur ekki staðið við skuldbindingar sínar,“ segir Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri. Arnar bætir við að þegar slík staða kemur upp greiði sjóðurinn kröfur ferðamanna en geri síðan endurkröfu í tryggingu viðkomandi ferðaskrifstofu. Reiknað er með að endurgreiðslum verði lokið á næstu 2-3 vikum.

Share this article