Veðmál um hvort verð á rafmyntum hækki eða lækki á næstu fimm eða fimmtán mínútum hafa notið ört vaxandi vinsælda og eru orðin eitt helsta æðið á spámörkuðum sem tengjast rafmyntum. Samkvæmt umfjöllun Financial Times nema dagleg viðskipti með slíka samninga nú um 70 milljónum dala á markaðstorgunum Polymarket og Kalshi. Samningarnir fela í sér að fjárfestar veðja á hvort verð á bitcoin, ethereum, solana eða XRP verði hærra eða lægra að örskammri stundu liðinni. Bæði Polymarket og Kalshi hófu að bjóða upp á fimmtán mínútna „upp eða niður“-samninga undir lok síðasta árs, en Polymarket hefur síðan bætt við fimm mínútna samningum á sömu myntir. Þessi viðskipti eru nú orðin meira en helmingur allrar rafmyntaveltu á báðum mörkuðum. Vöxturinn hefur jafnframt skapað ný tækifæri fyrir tæknivædd viðskiptafyrirtæki sem nýta sér tímamun, verðskekkjur og annað misvægi milli markaða. Amanda Fischer, stefnumótunarstjóri hjá hagsmunasamtökunum Better Markets og fyrrverandi starfsmannastjóri hjá bandaríska verðbréfaeftirlitinu SEC, segir að spámarkaðirnir hafi tekið eignaflokk sem fyrir var mjög spákaupmennskulegur og aukið enn á óróann. Að hennar mati hafi þessir vettvangar ýtt undir enn meiri æsing í viðskiptum með stafrænar eignir. Polymarket og Kalshi hafa vaxið hratt frá því þeir slógu í gegn í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum árið 2024. Þar hafa notendur veðjað tugum milljarða dala á tvíkosta niðurstöður um margvíslega atburði, allt frá íþróttaleikjum og efnahagsþróun til mögulegra hernaðaraðgerða Bandaríkjanna. Nú virðist sífellt stærri hópur almennra fjárfesta sækja í þessi skammtímaveðmál í leit að skjótum hagnaði, þrátt fyrir að bitcoin hafi fallið um meira en 40% frá hámarki sínu í október á síðasta ári. Financial Times nefnir dæmi um 29 ára verkfræðing, Max Wojcik, sem segist aðeins taka stöðu í fimm mínútna bitcoin-samningum eftir að hafa látið þrjú gervigreindarkerfi: Claude, Gemini og ChatGPT, greina verðgögn síðustu vikna og meta líkurnar á árangri. Hann segist þó ekki líta á sig sem fjárhættuspilara. Fyrirkomulagið líkist að mörgu leyti blöndu af hefðbundnum afleiðuviðskiptum og netveðmálum. Mike Selig, sem Donald Trump skipaði sem formann bandaríska afleiðueftirlitsins CFTC, hefur lýst yfir stuðningi við spámarkaði. Hann hefur sagt að slíkir samningar geti nýst fjárfestum til að verja sig gegn áhættu og stýra eignasöfnum sínum. FT hefur jafnframt áður greint frá því að Kalshi óski eftir heimild frá bandarískum eftirlitsaðilum til að bjóða framlegðarviðskipti á vettvangi sínum, þó að fyrirtækið hafi samkvæmt heimildum ekki í hyggju að leyfa skuldsett veðmál í þessum skammtímasamningum að svo stöddu. Sérfræðingar innan rafmyntageirans segja vöxtinn hafa verið mjög hraðan. Amir Hajian, sérfræðingur hjá viðskiptavakanum Keyrock, segir að fimm og fimmtán mínútna veðmál á bitcoin hafi vaxið með sprengikrafti og að í reynd sé hér um hreina spákaupmennsku að ræða. Að hans sögn eru þessir samningar sérstaklega vinsælir meðal almennra fjárfesta en jafnframt hafa hátæknivædd viðskiptafyrirtæki verið mjög virk á þessum mörkuðum.