Borgaryfirvöld í New York hafa hafið umfangsmikla rannsókn á fjórum mismunandi veðmálamörkuðum vegna gruns um villandi markaðssetningu og mögulega markaðssókn gagnvart börnum og ungmennum. Á vef WSJ segir að fyrirtækin fjögur sem um ræðir séu Polymarket, Kalshi, Coinbase og Gemini Titan. Julie Menin, forseti borgarráðs New York, sendi fyrirtækjunum fjórum bréf 11. ágúst þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvernig þau uppfylla reglur um neytendavernd en öll fyrirtækin eru með starfsemi í borginni. Sjá einnig Starfsmaður Google ákærður fyrir veðmálasvik Hún óskaði meðal annars eftir upplýsingum um kynningarmyndbönd sem eru talin hafa sýnt sviðsett viðskipti og efni á samfélagsmiðlum sem virtist ýta undir viðskipti á grundvelli innherjaupplýsinga. Sjónum var þá sérstaklega beint að markaðssetningu Polymarket. Greining WSJ á meira en 1.100 myndböndum frá Polymarket leiddi í ljós að um 70% myndbanda fyrirtækisins sýndu sérstakar sýndarsíður sem notaðar voru til að sviðsetja viðskipti. Fyrirtækin hafa nú tvær vikur til að svara bréfinu en Polymarket hefur áður sagt að félagið leggi áherslu á nákvæmt, sanngjarnt og gagnsætt markaðsefni.