Innlent | mbl | 15.3.2026 | 11:35 Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Forsætisráðherrarnir ræddu við blaðamenn. Skjáskot/Norska stjórnarráðið Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney, forsætisráðherra Kandanda, á blaðamannafundi í dag fyrir þá forystu sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði í því samhengi um tómarúm á alþjóðasviðinu sem þyrfti að fylla. Þá sagði hún Íslendinga óhrædda því þeir sæju tækifæri á tímum sem þessum til að breyta bandalögum sínum og víkka út sjóndeildarhringinn. Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanda hafa fundað í Osló, höfuðborg Noregs, í morgun og lauk þeim fundi með sameiginlegum blaðamannafundi. Í upphafi hans fluttu allir forsætisráðherrarnir stutta yfirlýsingu en í henni var almennt mikil áhersla lögð á sameiginleg gildi landanna sex, Íslands, Kanada, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands, og mikilvægi samstarfs þeirra á milli, meðal annars þegar kemur að norðurskautinu. Þá talaði Carney um að lönd heimsins stæðu frammi fyrir nýjum og síbreytilegum áskorunum. Eðli stríðsátaka væri að breytast og auk hefðbundinna ógna á borð við orku- og fæðuöryggi stæðu löng nú frammi fyrir nýjum ógnum, til að mynda á sviði jarðefna, gervigreindar og geimöryggis. Á sér marga aðdáendur Í yfirlýsingu sinni talaði Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, um að Carney ætti sér marga fylgismenn á Norðurlöndunum og vísaði í því samhengi í ræðu hans á efnahagsráðstefnunni í Davos sem vakti mikla athygli. Í ræðunni talaði Carney um breytta heimsmynd og sagði að reglubundin heimsskipan eftir kalda stríðið, sem gerð var möguleg með „bandarískri ofurheimsyfirráðastefnu,“ hefði orðið fyrir rofi og hvatti miðveldi til að sameinast gegn efnahagslegri þvingun frá stórveldum, sem „eru farin að nota efnahagslegan samruna sem vopn, tolla sem vogarafl, fjármálainnviði sem þvingun og birgðakeðjur sem veikleika til að nýta sér.“ Fredriksen sagði að hún hefði aldrei séð önnur eins viðbrögð við neinni ræðu. Frétt af mbl.is Myndskeið: Ræðan sem vakið hefur athygli Mark Carney forsætisráðherra Kanada á Davos. AFP Kristrún lagði áherslu á tækifæri Í upphafi yfirlýsingar sinnar tók Kristrún undir þetta. „Leiðtogar og almenningur eru þakklátir fyrir þá forystu sem Kanada hefur sýnt undanfarna mánuði,“ sagði Kristrún í upphafi yfirlýsingarinnar og bætti við að ákveðið tómarúm hefði skapast undanfarið þegar kemur að alþjóðlegri forystu. Þá sagði Kristrún tímana sem við lifum nú erfiða á vissan hátt en að það væru líka tækifæri sem fylgdu áskorununum. „Þetta er ekki í fyrsta sinn í sögunni sem breytingar hafa átt sér stað og ég tel að þetta sé sterkur hópur landa sem getur sýnt að við getum gert það af styrk, byggt upp ný samfélög fjárfestinga en einnig tækifæra, og ég tel að norðurslóðir séu mjög mikilvægt svæði í þeim efnum,“ sagði Kristrún. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eyþór „Ísland mun verða stór þátttakandi á því sviði“ „Ísland hefur augljóslega fundið fyrir þrýstingnum og fundið fyrir breytingum í aðgerðum í kringum okkur,“ hélt hún áfram. „Við höfum haft áhyggjur af Grænlandi, við höfum augljóslega áhyggjur almennt af ástandinu í Evrópu þegar kemur að Úkraínu en við erum ekki hrædd. Við sjáum þetta líka sem leið til að breyta bandalögum á þann hátt að þótt við séum ekki að útiloka neinn þá erum við líka að víkka út sjóndeildarhringinn.“ Þá ítrekaði hún að það væru ljósir punktar á tímum sem þessum. „Áherslan hjá NATO hefur til dæmis færst norður á bóginn. Umræðan um öryggi á norðurslóðum, tækifæri á norðurslóðum og efnahagslega samþættingu er líka meira viðeigandi í dag og Ísland mun verða stór þátttakandi á því sviði. Þannig að við fögnum hvers kyns samstarfi og ég tel að þessi hópur sýni að hægt er að sýna rólega og yfirvegaða framkomu á tímum sem þessum. Maður þarf ekki alltaf að bregðast við af offorsi.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nítján ára sigraði Formúlu 1 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Er þetta besta berjasósa allra tíma? Skoða viðbúnað við frostrigningu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Kvartað undan rukkunum Isavia Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Unnið við lúxushótel á ný Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Hættustigi lýst yfir á Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Nítján ára sigraði Formúlu 1 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Er þetta besta berjasósa allra tíma? Skoða viðbúnað við frostrigningu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kvartað undan rukkunum Isavia Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Unnið við lúxushótel á ný Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Hættustigi lýst yfir á Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir