Mark Carney forsætisráðherra Kanada.AP/The Canadian Press / Christinne Muschi Frjálslyndi flokkur Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, tryggði sér hreinan meirihluta í þingkosningunum í Kanada í gær eftir að hafa sigrað í tvennum aukakosningum. Frjálslyndi flokkurinn vann einnig flest þingsæti í kosningunum á síðasta ári en náði þó ekki þingmeirihluta í þeim kosningum. Kanadamenn kusu í þremur umdæmum í gær til að fylla laus þingsæti og Frjáslyndir unnu í öllum umdæmunum. Carney hefur boðað aukin útgjöld í varnarmálum því Kanada geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin fyrir öryggi. Hann hefur ferðast víða í embætti sínu sem forsætisráðherra til að reyna að koma á nýjum viðskiptasamningum í Asíu og Evrópu.