Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Carney útilokar ekki að Kanada geti blandast í átök en segir það þó fræðilegt úrlausnarefni

Read Full Article →

Kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney kveðst ekki alveg geta útilokað að Kanada blandi sér í átökin í Mið-Austurlöndum. var inntur þessa á blaðamannafundi með ástralska forsætisráðherranum Anthony Albanese, í Canberra þar sem hann er staddur. Carney sagði meginverkefni stjórnar hans að vernda Kanadamenn og að hún stæði með samherjum sínum um leið og hann áréttaði að spurningin væri í raun fræðilegs eðlis. Hann hefur sagt hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels í Íran stangast á við alþjóðalög og hefur krafist þess að komist verði hjá stigmögnun stríðsins. Hins vegar hefur hann sagst styðja aðgerðir sem hindri Írani í að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Carney flutti ræðu í ástralska þinginu þar sem hann áréttaði ákall um samstöðu miðlungsstórra ríkja gegn ofríki stórveldanna. „Í þessari nýju, góðu veröld mega miðlungsstóru ríkin ekki fela sig bak við varnarmúra. Við verðum að vinna saman, því önnur ríki þekkja gildi okkar og að við meinum það sem við segjum,“ sagði Carney. Þau geti með samstöðu skráð þær reglur sem ný heimsskipan byggi á, fremur en að láta þau voldugri gera það fyrir sig. Carney boðaði einnig aukna samvinnu við Ástrali, meðal annars í varnarmálum og þróun gervigreindar.

Share this article