Evrópuævintýri Bodø/Glimt er á enda eftir 5-0 tap í kvöld gegn portúgalska liðinu Sporting Lisbon. Norska liðið hefur verið spútniklið vetrarins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Þeir norsku leiddu 3-0 eftir glæsilegan sigur í Noregi en Sporting náði ótrúlegri endurkomu og fer því í 8-liða úrslit. Sóknarþungi heimamanna í Sporting var ógurlegur nær allan leikinn og leyfðu þeir þeim norsku aldrei að ná andanum. Goncalo Inácio skoraði fyrsta markið á 34. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik. Eftir að Pedro Goncalves kom heimamönnum í 2-0 var sem allt loft færi úr blöðru gestanna. Sporting sóttu og sóttu Luis Suárez jafnaði úr vítaspyrnu á 79. mínútur sem var dæmd eftir að dómarinn fór í myndbandsskjáinn og dæmdi hendi. Leikurinn fór því í framlengingu og í henni skoraði Maximiliano Arújo á 92. mínútu. Nel gerði svo endanlega út um drauma Norðmanna með marki í uppbótartíma framlengingar. Norska liðið átti ævintýralega keppni og vann meðal annars Manchester City, Atletico Madrid og Inter Milan á leið sinni í 16 liða úrslitin. Leikir sem standa nú yfir Svona var staðan um miðjan fyrri hálfleik. Arsenal 0 - 0 Leverkusen (1-1 samanlagt) Chelsea 0 - PSG 2 (2-7 samanlagt) Manchester City 0 - 1 Real Madrid (0-4 samanlagt)