Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skrifar norska undrið söguna á San Siro í kvöld?

Read Full Article →

Erfiðar aðstæður voru í norður Noregi í síðustu viku þegar Bodö/Glimt sem hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili tók á móti toppliðinu frá Ítalíu, Inter, í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í síðustu viku. Staðan var jöfn í leikhléi 1-1 en norska liðið skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og vann 3-1. Bodö/Glimt hefur náð eftirtektarverðum árangri í Evrópukeppnum síðustu ár og fór alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili en tekur nú í fyrsta sinn þátt í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Inter er hinsvegar sögufrægt lið í þessu samhengi og hefur þrisvar orðið Evrópumeistari, síðast 2010. Liðin mætast í öðrum leik sínum í kvöld og þá kemur í ljóst hvort þeirra heldur í 16-liða úrslitin. Þórður Helgi Þórðarson umsjónarmaður Sportrásarinnar á Rás 2 og Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður fjölluðu um uppgang Bodö/Glimt. Þeir byrjuðu á að útskýra nafn félagsins sem heitir sem sagt Glimt en er frá bænum Bodö. Sögulega séð er þetta jójó-lið. Þeir ná stundum nokkrum árum í efstu deild en rokka upp og niður. Það er hark að halda úti fótboltaliði í norður Noregi. Það er kalt þarna. Uppgangur þeirra í nútímasögunni hefst 2018/19 þegar Kjetil Knutsen tekur við liðinu í næstefstu deild, segir Jóhann. Knutsen er upphaflega ráðinn sem aðstoðarþjálfari en tekur svo við sem aðalþjálfari og upp frá því hefst velgengnin. „Meginástæðan fyrir því að ég vildi fá upplýsingar um þetta er að þeir eru að spila ofsalega skemmtilegan bolta. Og þeir reyna hluti sem Ítalirnir eru ekki einu sinni að reyna,“ segir Þórður Helgi, yfirleitt kallaður Doddi litli. Knutsen kom liðinu upp í efstu deild og það hafnaði í fjórða sæti á sínu fyrsta tímabili þar í þessari lotu. Síðan hefur Bodö fjórum sinnum orðið Noregsmeistari; 2020, 2021, 2023 og 2024. Alfons Sampsted, landsliðsmaður Íslands, spilaði 88 leiki fyrir liðið á árunum 2020-2022. Þeir vinna mikið með gögn. Þeir eru búnir að fara í gegnum fjóra fasa af liðum síðan þeir komu upp og eru alltaf tilbúnir að selja bestu mennina sína. Og finnst það ekkert mál. Þeir eru að leita að mönnum sem önnur norsk lið eru ekki að leita að. Þeir hafa náð að viðhalda áranginum, sem er áhugavert, segir Jóhann. Fjórir leikir verða spilaðir í meistaradeild karla í fótbolta í kvöld í 32-liða úrslitum. Þar á meðal er viðureign Inter og Bodö/Glimt en norska liðið vann fyrri leikinn 3-1.

Share this article