Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrsta tap í marga áratugi hjá Honda

Read Full Article →

Japanski bílaframleiðandinn Honda áætlar að skila 360-630 milljarða jena tapi á yfirstandandi fjárhagsári sem lýkur í þessum mánuði. Það samsvarar tapi upp á 280-500 milljarða króna. Félagið hafði áður gert ráð fyrir að skila hagnaði. Þetta yrði í fyrsta sinn sem Honda skilar tapi yfir heilt rekstrarár frá því að bílaframleiðandinn var skráður á hlutabréfamarkað á sjötta áratugnum. Afkomuviðvörunin fylgir í kjölfar þess að félagið tilkynnti að það myndi hætta við þrjár rafbílagerðir sem áttu að fara í framleiðslu í Norður-Ameríku. Honda varaði jafnframt við allt að 2,5 þúsund milljarða jena tapi, eða sem nemur 15,7 milljörðum dala, á tveimur árum vegna endurskipulagningar á stefnu sinni er varðar rafbílavæðingu. Í tilkynningu sagði Honda að rekstrarhorfur hafi versnað vegna ýmissa þátta, þar á meðal að félagið hefur ekki ná að brugðist nægilega vel við miklum breytingum í rekstrarumhverfi sínu. Í umfjöllun Financial Times segir að Honda sé nýjasti alþjóðlegi bílaframleiðandinn sem hefur orðið fyrir barðinu á hægari vexti rafbílamarkaðarins í Bandaríkjunum í forsetatíð Donalds Trumps, en ríkisstjórnin hefur dregið úr niðurgreiðslum til að styðja við rafbíla. Forseti Honda, Toshihiro Mibe, sagði í síðasta mánuði að eftirspurn eftir rafbílum á bandaríska markaðnum væri „minna en helmingur af því sem við gerðum ráð fyrir“. Þá er japanski bílaframleiðandinn einnig að glíma við umfangsmikla tolla bandarískra stjórnvalda. Honda hefur sótt hvað mest fram í framleiðslu rafbíla af japönsku bílaframleiðendunum en félagið hefur stefnt að því að árið 2040 verði félagið eingöngu með rafbíla og vetnisrafbíla í sölu.

Share this article