Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Útskýra af hverju Þór mætti ekki til leiks: Raunveruleg hætta vegna veðurs

Read Full Article →

Kvennalið Þórs mætti ekki til leiks gegn Selfossi en leikur liðanna átti að fara fram í kvöld í næstefstu deild kvenna í körfubolta. Forsvarsmenn Þórsara tóku ákvörðunina að leikmenn liðsins skyldu ekki ferðast suður til Selfoss. Mikið vonskuveður hefur verið víða á landinu. Körfuknattleikssamband Íslands vísaði til þess að vegir væru opnir og því bæri Þórsurum að mæta til leiks. Óvíst er enn sem komið er hvort að Þórsurum verði dæmt tap. Þá gæti KKÍ sektað liðið fyrir að mæta ekki til leiks. KKÍ benti á að erfitt væri að finna aðra dagsetningu í þéttu keppnisdagatali. Við teljum að íþróttir eigi að sameina landið, ekki skapa aðstæður þar sem félög á landsbyggðinni standa frammi fyrir sífelldum þrýstingi um að taka áhættu sem önnur félög þurfa sjaldnar að horfast í augu við - úr yfirlýsingu Þórsara Töldu raunverulega hættu geta myndast Þór er í 3. sæti með 26 stig og Selfoss í 4. sæti með 22 stig. Stjórnin taldi að raunveruleg hætta gæti skapast og að sú skylda að taka ábyrgð gagnvart leikmönnum liðsins vegi þyngra en mótaskipulag. Þórsarar bera fyrir sig að Öxnadalsheiði hafi verið lokuð og að Holtavörðuheiði hafi ekki opnað fyrri 11:30. Leikurinn átti að hefjast klukkan 19:15 í kvöld. Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs harmar þau viðbrögð sem við fengum í þessu máli og það sem við upplifum sem algeran skort á skilningi á alvarleika aðstæðna og ábyrgð gagnvart öryggi leikmanna. Við stöndum engu að síður heilshugar við þá ákvörðun sem tekin var. Þó hún kunni að hafa í för með sér afleiðingar fyrir félagið erum við sannfærð um að hún hafi verið rétt og nauðsynleg miðað við þær aðstæður sem uppi voru - úr yfirlýsingunni.

Share this article