Bikarmót í áhalda- og hópfimleikum fer fram nú um helgina í húsakynnum Fjölnis í Egilshöll. Flest af besta áhaldafimleikafólki landsins er í Gerplu og það sást í dag. Karlalið Gerplu setti tóninn strax á bogahestinum og átti hæstu einkunn á öllum sex áhöldunum. Samtals fengu Gerplumenn 224,6 stig, 29,4 stigum meira en lið Bjarkar sem varð í öðru sæti. Gerpla 2 varð svo í þriðja sæti. „Við vorum bara nokkuð öruggir alla leið í gegn. Við byrjuðum vel á boganum og kláruðum það ágætlega. Það setti tóninn fyrir keppnina og við kláruðum nokkuð hnökralitið,“ sagði Ágúst Ingi Davíðsson, liðsmaður Gerplu. „Gengur alltaf miklu betur þegar við höfum gaman“ Kvennakeppnin var jafnari en þar eru Gerplukonur einnig sterkastar og sigur Gerplu 1 í raun aldrei í hættu. Líkt og karlarnir fengu þær bestu einkunn á öllum áhöldunum og samtals 146,4 stig. Stjarnan varð í öðru sæti, 11,8 stigum á eftir Gerplu 1 og eins og í karlaflokki vann Gerpla 2 bronsverðlaunin. „Við komum bara alltaf inn í mót til að gera okkar besta og hafa mjög gaman. Við viljum sýna hvað við erum búnar að leggja mikið á okkur á æfingum. Okkur gengur alltaf miklu betur þegar við höfum gaman,“ sagði fimleikakona ársins, Hildur Maja Guðmundsdóttir, liðskona Gerplu. Karla- og kvennalið Gerplu urðu bikarmeistarar í áhaldafimleikum í dag og vörðu þar með bæði bikarmeistaratitlana frá því í fyrra. Það er sannkölluð bikarhelgi í fimleikum hér á landi um helgina og á morgun er bikarkeppnin í hópfimleikum. Rétt eins og í dag verða hópfimleikarnir í beinni útsendingu á RÚV klukkan 14 á morgun.