Gerpla varð í dag bikarmeistari kvenna í hópfimleikum, Stjarnan vann bikarinn í karlaflokki. Stjörnukonur voru ríkjandi bikarmeistarar en þær fundu ekki alveg sama takt í dag og í fyrra. Það gerðu Gerplukonur hins vegar og þær fengu hæstu einkunn í öllum þremur greinunum, gólfæfingum, stökki og trampólíni. Samtals fékk Gerpla 53,450 stig, 2,875 meira en Stjarnan sem fékk silfur. Selfoss var ekki langt á eftir Stjörnunni og vann bronsverðlaunin. Það lá ekki á svörum þegar Gerplukonan Margrét Júlía Jóhannsdóttir var spurð að því hvað hefði skapað sigurinn: „Geggjuð liðsheild. Við vorum bara ákveðnar að ná þessu, við ætluðum að gera þetta og öll vinnan skilaði sér.“ Hún sagði jafnframt að liðið hefði fundið á sér strax í upphitun að þær væru með þetta: „Við vissum að þetta væri okkar dagur.“ Og eftir silfur tvö ár í röð var gaman að vinna bikarinn á ný: „Bikarinn er kominn heim.“ Gerpla varð í dag bikarmeistari kvenna í hópfimleikum. Liðið vann bikarinn síðast 2023 en Stjarnan, sem fékk silfur í dag, vann síðustu tvö ár. Stjarnan var eina liðið í karlakeppni og því bikarmeistari karla í ár. Hvetur alla stráka til að prófa hópfimleika Í karlaflokki var bara eitt lið skráð til leiks, ríkjandi bikarmeistarar Stjörnunnar. Garðbæingar áttu því sigurinn vísan en létu það ekki aftra sér frá því að sýna glæsilegar æfingar. Fyrir gólfæfingar sínar fengu þeir 17,300 stig, í stökki 17,950 stig og á trampólíni 17,000 stig. Samtals urðu stigin því 52,250. Sverrir Björgvinsson er í Stjörnunni og hann, sem og liðsfélagar hans, voru sáttir með daginn: „Þetta gekk alveg fáránlega vel. Þetta voru held ég 33 lendingar af 36 sem er æðislegt.“ Þrátt fyrir að vera eina liðið í keppninni passa liðsfélagarnir upp á að halda stemningunni í liðinu góðri og gíra sig rétt fyrir mót: „Við héldum bröns áðan til að byggja upp stemninguna og við erum búnir að æfa saman síðan í október, eftir síðasta Norðurlandamót.“ Og markmiðið er einmitt að komast á pall á næsta Norðurlandamóti sem er á næsta ári, það sé raunhæft haldi liðið áfram að æfa vel. Fyrir þá stráka sem eru að íhuga hópfimleika voru skilaboð Sverris einföld: „Þetta er æðisleg íþrótt, þetta er ógeðslega skemmtilegt. Ég hvet alla til að byrja að æfa fimleika.“ Gerpla varð í dag bikarmeistari kvenna í hópfimleikum. Liðið vann bikarinn síðast 2023 en Stjarnan, sem fékk silfur í dag, vann síðustu tvö ár. Stjarnan var eina liðið í karlakeppni og því bikarmeistari karla í ár.