Sportjeppinn er flaggskip BMW í rafbílaaflotanum og fékk nýverið andlitslyftingu sem og meira afl og drægni. Útlitið er nútímalegt með flottum framog afturljósum sem eru samt minni en BMW hefur nokkru sinni framleitt. Lóðrétt grillið er allt öðruvísi en maður á að venjast hjá BMW. Klassíska nýrnagrillið hefur alla vega tekið allmiklum breytingum. Innfelld hurðarhandföngin og rammalausar hurðir eru til marks um nútímalega hönnun. Enn aflmeiri en áður BMW iX er fjórhjóladrifinn og 100% rafknúinn. Reynsluakstursbíllinn er BMW iX xDrive 45 í Sport útfærslu. Rafhlaðan er 98,4 kW og skilar 602 km drægni samkvæmt WLTP sem er umtalsvert meira en forverinn gerði. Það er ekki bara drægnin sem er meiri heldur aflið líka. Rafhlaðan skilar bílnum 408 hestöflum og togið er alls 700 Nm, sem er býsna gott. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. er 5,1 sekúnda. Það er einna helsti styrkur þessa stóra bíls hversu snöggur hann er upp. Aflið er feykilega gott þegar tekið er af stað. Lóðrétt grillið er allt öðruvísi en maður á að venjast hjá BMW. Klassíska nýrnagrillið hefur alla vega tekið allmiklum breytingum. © Róbert Róbertsson (Róbert Róbertsson) Aksturinn er mjúkur og góður eins og búast má við í BMW. Aksturseiginleikarnir eru mjög góðir í alla staði. Stýringin er mjög góð og maður svífur hreinlega um göturnar á þessum stóra bíl. BMW iX er byggður á skalanlegum undirvagni úr áli og koltrefjum. Loftmótstaða bílsins er mjög góð eða 0,25 og þar hjálpa til smáatriði í hönnuninni eins og gluggagrafík sem teygir sig aftir með bílnum, innfelld hurðarhandföngin og rammalausar hurðir. Rafhlaða BMW iX xDrive 60 er stærri, eða 109,1 kW, en sú útfærsla hefur allt að 701 km drægni. Rafhlaðan í BMW iX xDrive 60 skilar alls 544 hestöflum og togið er 765 Nm. Snerpan úr kyrrstöðu í 100 km/klst. er 4,6 sekúndur í þeirri útfærslu. Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .