Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frumsýning á tveimur nýjum rafbílum

Read Full Article →

Tveir nýir bílar frá Leapmotor verða frumsýndir hér á landi á laugardag. Báðir eru þeir 100% rafknúnir, en B05 er fólksbíll með sportlegu yfirbragði og B03X lítill jepplingur. Frumsýningin er á vegum Ísband, sem er umboðsaðili Leapmotor á Íslandi, og fer fram á bæjarhátíðinni Í túninu heima í Mosfellsbæ. B05 verður fáanlegur í tveimur útfærslum. Life-útgáfan er með 56,2 kWh rafhlöðu og allt að 401 kílómetra drægni. Design-útgáfan er með 67,1 kWh rafhlöðu og allt að 482 kílómetra drægni. Bíllinn er meðal annars með 360 gráðu myndavél, akstursaðstoðarkerfi og 14,6 tommu snertiskjá. Í Design-útgáfunni bætast við panorama-glerþak, leðursæti og hiti í framsætum og stýri. B05 Life kostar 3,49 milljónir króna með rafbílastyrk en Design-útgáfan kostar 3,99 milljónir króna. B03X er 4,2 metra langur og framhjóladrifinn. Hann verður einnig fáanlegur í tveimur útfærslum. Life-útgáfan er með 39,8 kWh rafhlöðu og allt að 292 kílómetra drægni en Design-útgáfan er með 53 kWh rafhlöðu og allt að 382 kílómetra drægni samkvæmt WLTP-staðlinum. B03X er með flatt gólf, sveigjanlega sætaskipan og 33 geymsluhólf. Fimm metra beygjuradíus á jafnframt að auðvelda akstur og bílastæðaleit í þéttbýli. Life-útgáfan kostar 2,99 milljónir króna með rafbílastyrk en Design-útgáfan 3,59 milljónir króna.

Share this article