Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meistarinn er mættur

Read Full Article →

Það er ekki oft sem bílar eru hlaðnir verðlaunum um leið og þeir koma á markað. Sú er þó raunin með nýjan BMW iX3, sem var valinn Heimsbíll ársins og Besti rafbíll ársins á alþjóðlegu bílasýningunni í New York nýverið. Þetta er fyrsti bíllinn í hinni nýju Neue Klasse-línu BMW og sterkt fyrir lúxusbílaframleiðandann í München að fá svona fljúgandi start með verðlaunabíl. Það má því með sanni segja að meistarinn sé mættur og það var með mikilli eftirvæntingu sem ég fékk gripinn í hendur á dögunum til að prófa. Framhlið bílsins er kraftmikil en sannarlega ólík öðrum bílum bæverska lúxusbílaframleiðandans. Nýrnagrillið fræga sem er einkennismerki BMW-bíla fær glænýja hönnun og framljósin eru öðruvísi en áður. Þau eru lárétt og gera framlínu bílsins djarfa og spennandi. Þetta er nútímalegt útlit og djarft útspil hjá hönnuðum BMW. Þetta kemur samt vel út að mínu mati en allra íhaldssömustu aðdáendur merkisins verða mögulega fyrir vonbrigðum. Afturhluti bílsins er flottur og heildarútlitið og lárétt og mjó afturljósin minna mig á stóra bróður, iX. © Róbert Róbertsson (Róbert Róbertsson) Afturhluti bílsins er flottur og heildarútlitið og lárétt og mjó afturljósin minna mig svolítið á stóra bróður, iX-sportjeppann. Innfelld og sjálfvirk hurðarhandföngin falla nánast ósýnilega inn í boddíið á hinum nýja iX3. Þetta er önnur nútímaleg og flott nálgun hjá hönnuðum bílsins. Nútímalegt innanrými Innanrýmið er mjög nútímalegt og sniðið að ökumanninum. Stór skjár fyrir miðju og síðan er langur skjár sem nær þvert yfir rýmið undir framrúðunni með ýmsum upplýsingum, allt frá hraðanum til veðurs. Þetta er nýstárlegt en venst vel. Innanrýmið er nútímalegt og sniðið að ökumanninum. © Róbert Róbertsson (Róbert Róbertsson) Stýrið í M-útfærslunni sem reynsluekið var minnir helst á kappakstursstýri. Það er mjög þægilegt að mínu mati en mögulega er það ekki allra. Ég er yfirleitt hrifinn af því sem M-deildin hjá BMW gerir og það breytist ekkert núna með þessum bíl. Sætin í bílnum með M-pakkanum eru mjög sportleg og styðja vel ökumann og farþega frammi í. Þau eru meira að segja með nuddi. Það er gott pláss fyrir farþega aftur í. Farangursrýmið er sömuleiðis rúmgott með samtals 1.750 lítra pláss. Að auki er 58 lítra pláss undir vélarhlífinni en þar er einnig hleðslusnúran geymd. Aflmikill og með 805 km drægni Það má með sanni segja að BMW iX3 sameini öfluga frammistöðu, byltingarkennda tækni og mjög góða akstursupplifun. Bíllinn er afar góður í akstri eins og venjan er nú yfirleitt með BMW-bíla. Hann er sportlegur en líka svo þægilegur í akstri. Stýringin er afbragðsgóð, en BMW iX3 er fyrsta ökutækið sem sameinar stýringu aflrásar og aksturseiginleika í eina einingu sem bílaframleiðandinn kallar BMW Heart of Joy. Miðtölvan, ásamt BMW Dynamic Performance Control-hugbúnaðinum, samhæfir alla viðeigandi ferla á örskotsstundu og tryggir framúrskarandi akstursdýnamík og nákvæmni. Bíllinn liggur mjög vel og gefur ekkert eftir þótt tekið sé á honum í beygjum. Hann er þéttur og lítið sem ekkert veghljóð heyrist inn í hann jafnvel þótt ekið sé nokkuð greitt. Það er feykigóður kraftur í bílnum og rafhlöðurnar skila alls 469 hestöflum og 645 Nm togi. Hröðun úr kyrrstöðu í hundraðið er aðeins 4,9 sekúndur. Hámarkshraði er 210 km/klst. Þetta er sannarlega enginn letingi. BMW iX3 er með allt að 805 km drægni samkvæmt WLTP-mælingum, sem setur hann í flokk með þeim bílum sem hafa yfir mestri drægni að ráða. Bíllinn styður allt að 400 kW hraðhleðslu við kjöraðstæður og getur hann því farið úr 10% í 80% hleðslu á aðeins 21 mínútu. Hönnunin á nýjum BMW iX3 er nútímaleg og djörf. © Róbert Róbertsson (Róbert Róbertsson) Tvöfaldur sigur í New York BMW iX3 var valinn bæði „World Car of the Year" og „World Electric Vehicle" árið 2026 á alþjóðlegu bílasýningunni í New York. Vakti hann mikla athygli dómnefndar, sem skipuð var 98 bílablaðamönnum frá 33 löndum. Dómnefndin lofaði sérstaklega aksturseiginleika, afköst og tækninýjungar bílsins. Samkeppnin var hörð í ár, en alls tóku 57 bílar þátt í kjörinu um „World Car of the Year" og 43 bílar í „World Electric Vehicle". Verðlaunin byggja á ítarlegum reynsluakstri og fagmati dómnefndarinnar. Með þessum árangri bætir BMW við tveimur nýjum titlum í safnið og hefur bílaframleiðandinn nú unnið til alls ellefu verðlauna í sögu World Car Awards. Fyrsti bíllinn í Neue Klasse-línunni Hjá BMW táknar Neue Klasse umskipti bílaframleiðandans yfir í raf- og stafrænan akstur. BMW-bílarnir sem byggðir eru á Neue Klasse verða með nýjum byltingarkenndum undirvagni, nýrri rafeindatækni og hugbúnaðarhönnun bílaframleiðandans sem býður upp á meiri drægni, hraðari hleðslu og fleiri hugbúnaðareiginleika. BMW segir að iX3 sé fyrsti hugbúnaðarstýrði bíllinn, en hann er með 20 sinnum meira reikniafl en forverinn. Afkastamiklar tölvur nýja iX3 sportjeppans sameina vinnsluafl sitt fyrir aksturseiginleika, sjálfkeyrandi akstur, upplýsinga- og afþreyingarkerfi og þægindaaukandi eiginleika. Framljósin eru öðruvísi í laginu en áður. Þau eru lárétt og gera framlínu bílsins djarfa og spennandi. © Róbert Róbertsson (Róbert Róbertsson) Ný kynslóð stjórn- og upplýsingakerfis BMW iX3 býr yfir nýrri kynslóð stjórn- og upplýsingakerfis frá BMW, Panoramic iDrive, en það sameinar skjái og upplýsingagjöf með skýrum og notendavænum hætti. Niðurstaðan er betri yfirsýn fyrir ökumann og einfaldari, þægilegri akstursupplifun. Um leið stýrir miðlægt stjórnkerfi, svokallað „Heart of Joy", aksturseiginleikum bílsins, á meðan öflugar ofurtölvur sjá um sjálfvirkan akstur, bílastæðaaðstoð, afþreyingu og helstu grunn- og þægindakerfi. Með allt að tuttugufalt meiri reiknigetu en áður tryggir þessi háþróaða tækni BMW framúrskarandi veggrip, mikla nákvæmni í akstri og einstaklega mjúka hemlun. BMW framleiðir nýjan iX3 fyrir Evrópumarkað í nýrri og tæknivæddri verksmiðju bílaframleiðandans í Debrecen í Ungverjalandi. Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article