- What: Aston Martin sold the rights to use its name in Formula 1 to Lawrence Stroll, the principal owner of the F1 team, for £50 million.
- Impact: The sale strengthens Aston Martin's liquidity position.
Aston Martin hefur tryggt sér 50 milljónir punda, eða um 8,3 milljarða króna, með sölu á rétt til að nota nafn bílaframleiðandans í Formúlu 1 til Lawrence Stroll, aðaleiganda F1-liðsins, „um alla eilífð“ (e. „in perpetuity“). Stroll er stærsti hluthafi Aston Martin í gegnum fjárfestahópinn Yew Tree sem á samtals 32,7% hlut í bílaframleiðandanum. Hann hafði áður tryggt F1-liðinu samning sem gerir því kleift að nota Aston Martin nafnið fram til ársins 2055. Breski bílaframleiðandinn glímir við krefjandi rekstrarumhverfi, m.a. vegna tollastríðs Bandaríkjaforseta og minni eftirspurn í Kína. Í kauphallartilkynningu segir Aston Martin að salan styrki lausafjárstöðu félagsins. Stroll eignaðist F1-liðið árið 2018, þegar það hét Force India, og breytti nafninu í Aston Martin árið 2021. Sonur hans, Lance Stroll, hefur verið annar af ökuþórum liðsins frá árinu 2019. Auk Yew Tree fjárfestahópsins sem Stroll fer fyrir studdu kínverska fyrirtækið Geely, sem á 14% hlut í Aston Martin, og Mercedes-Benz, eigandi 7,5% hlutafjár í breska bílaframleiðandanum, tillögu um sölu nafnaréttindanna til Stroll.