Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Forstjóri á snjóbretti

Read Full Article →

Sunna Björg Helgadóttir var ráðin forstjóri Rio Tinto á Íslandi í byrjun árs og mun taka við af Rannveigu Rist sem hefur gegnt starfinu frá árinu 1997. Hún mun hefja störf í þessari viku og tekur svo formlega við starfi forstjóra í næsta mánuði. Hún mun einnig taka sæti Rannveigar í framkvæmdastjórn Aluminum Atlantic-deildarinnar innan Rio Tinto. Sunna kemur til Straumsvíkur frá HS Orku þar sem hún hefur verið framkvæmdastjóri tæknisviðs síðan 2020. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Alvotech frá 2016 til 2020 en bakgrunnur Sunnu hjá Rio Tinto hófst hins vegar árið 2001. „Ég byrjaði að vinna í mötuneytinu í álverinu við Straumsvík 18 ára gömul. Ég bjó í Hafnarfirði á þeim tíma en það var enginn í fjölskyldunni sem vann þar. Sú sem tók atvinnuviðtalið við mig var hissa að ég þekkti engan þarna en ég hafði bara heyrt að þetta væri betur borgað en unglingavinnan.“ Nánar er fjallað um Sunnu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article