Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ernu Athichu enn leitað

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ernu At­hichu enn leitað Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu leitar enn Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára stúlku. Hennar hefur verið saknað í það minnst frá því á mánudaginn. Erna er með brún augu og sítt hár með ljósum strípum, grannvaxin og 170 sentímetrar á hæð. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ernu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112. Ljósmynd / Aðsend Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Fimm sóttu um emb­ætti for­stjóra Heil­brigð­is­stofn­un­ar Aust­ur­lands Ragnhildur Helgadóttir Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsóknarfrestur rann út 22. júní. Þessu er greint frá í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Umsækjendurnir eru: Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi Jón Magnús Eyþórsson, tölvunarfræðingur Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri Þriggja manna hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar og skilar ráðgefandi áliti til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 25 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Geta ekki slegið föstu hvort drónar hafi flogið yfir Kaup­manna­höfn Lögreglan í Kaupmannahöfn kynnti í dag skýrslu um atvik í september þar sem lokað var fyrir umferð um flugvöllinn þar í borg vegna óþekkts flygildis yfir svæðinu. Ekki er hægt að slá því föstu að drónar hafi flogið þar yfir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Fyrst Evr­ópu­þjóða til að slökkva alveg á 2G og 3G Erlendir ferðamenn gætu lent í vandræðum með að ná símasambandi við komuna til landsins. Ísland er fyrsta landið í Evrópu til þess að slökkva alveg á 2G- og 3G-sendum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Sam­eyki til­kynnt fyr­ir­fram um upp­sagn­ir hjá borg­inni Forstjóri stéttarfélagsins Sameyki staðfestir að stéttarfélaginu hafi borist tilkynning um uppsagnir borgarinnar samkvæmt lögum um hópuppsagnir. Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar var sagt upp eða fært til í starfi í dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Um­fangs­mikl­ar upp­sagn­ir í Ráð­húsi Reykja­vík­ur – Til­kynnt um hóp­upp­sögn Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp eða fært til í starfi. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skrifstofa samskipta og viðburða verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir. Þá herma heimildir fréttastofu einnig að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður auk stefnumótunar- og þróunarteymis skrifstofu borgarstjóra. Formaður Sameykis staðfestir að stéttarfélaginu hafi borist tilkynning um uppsagnir borgarinnar samkvæmt lögum um hópuppsagnir. Ekki liggur fyrir hve mörgum hefur verið sagt upp. Frekari upplýsinga um uppsagnirnar er að vænta síðdegis. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björg­un­ar­sveit­ir að­stoða kalt og hrakið göngu­fólk á Suð­ur­landi Björgunarsveitir á Suðurlandi eru í þremur útköllum vegna kaldra og blautra ferðamanna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hvað á að gera við ein­kenn­um hita­slags? Læknar segja mikilvægt að vera vakandi fyrir einkennum vegna mjög mikils hita. Samferðafólk eigi að fylgjast með einkennum hvors annars og leita læknisaðstoðar sem fyrst ef einkenni eru alvarleg. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Útboð hafið fyrir fram­kvæmd­ir við fang­els­ið að Stóra-Hrauni Útboð vegna jarðvegsframkvæmda við nýtt öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni er hafið. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Madibo í fimm leikja banni Assim Madibo, leikmaður Katar, mun sæta fimm leikja banni fyrir brot sitt á Kanadamanninum Ismaël Koné í leik liðanna í síðustu viku. Katar er hins vegar úr leik á mótinu og því mun hann taka bannið út síðar. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Þunn þjóð­há­tíð­ar­út­gáfa/Bolur Ís­lands, sverð þess og skjöld­ur „Skýra heildarsýn skortir sem gerir það að verkum að ekkert á plötunni verður afgerandi og hún helst almennt flöt,“ segir Jóhannes Bjarki Bjarkason um Algrím hjartans með Hipsumhaps sem var plata vikunnar á Rás 2. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Mann­rétt­inda­skrif­stofa lögð niður og upp­sagn­ir á skrif­stofu borg­ar­stjóra Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður. Samkvæmt heimildum fréttastofu var nokkrum sagt upp og aðrir færðir til í starfi. Stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofu borgarstjóra hefur einnig verið lagt niður. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Há­skól­inn á Bif­röst í við­ræð­um við Byggða­stofn­un um lán­veit­ingu Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa fundað með Byggðastofnun vegna mögulegs láns til að gera upp fasteignir skólans. Rektor segir að verið sé að skoða möguleika sem snerta framtíð fasteigna háskólans í Norðurárdal. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Öllum upp­lýs­inga­full­trú­um borg­ar­inn­ar sagt upp Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg hefur verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Breyta Svíar klukk­unni fyrir HM? Sænska karlalandsliðið í fótbolta mætir því Japanska í lokaumferð riðlakeppni HM í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 23:00 á íslenskum tíma, Svíar eru tveimur tímum á undan en ætla ekki að láta klukkuna stoppa sig. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Fylgj­end­ur Trumps eins og sér­trú­ar­söfn­uð­ur“ Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddi bandarísk stjórnmál í Heimsglugganum á Morgunvaktinni. Hún segir mögulegt að vinsældir Trumps Bandaríkjaforseti geti aukist á ný því líkja megi mörgum fylgjendum hans við sértrúarsöfnuð. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Nýju deili­skipu­lagi fyrir Suð­ur­lands­braut hafnað Nýr meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs hafnaði tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Suðurlandsbraut. Skipulagið var bitbein í kosningabaráttunni og gamli meirihlutinn harmar að hönnunarferli sé komið aftur á byrjunarreit. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Evr­ópsk­ir að­dá­end­ur taka yfir Banda­rík­in Evrópskir aðdáendur hafa nýtt sér að HM í fótbolta sé meðal annars haldið í Bandaríkjunum til að kynnast menningunni þar, allt frá hafnaboltaleikjum til nautgripasmölunar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin varar við svika­skila­boð­um um ógreidd bíla­stæða­gjöld Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Stöðumælavörður. RÚV / Ragnar Visage Reykjavíkurborg varar við svikaskilaboðum sem fólki hafa borist um ógreidd bílastæðagjöld. „ATH: Bílastæðasjóður borgarinnar er ekki að senda frá sér nein SMS heldur er um svikatilraunir að ræða. Alls ekki bregðast eða fylgja hlekkjum úr þessum skilaboðum,“ segir í borða efst á vef borgarinnar. Skjáskot Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Loft­kæl­ing orðin að pól­it­ísku bit­beini í hita­bylgj­unni Hitamet eru að falla hægri og vinstri í Evrópu, þar á meðal í Frakklandi, þar sem hitabylgjan hefur vakið upp harða og afar pólitíska umræðu í Frakklandi um kosti og galla loftkælingar. Aðeins um fjórðungur bygginga í Frakklandi er með slíkan búnað. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fylgir starfi lög­reglu að um­gang­ast fólk með smit­sjúk­dóma Formaður stjórnar Landssambands lögreglumanna segir sóttvörnum í störfum lögreglu ábótavant. Lögreglumaður greindist með berkla fyrr á árinu. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Gaman að sjá við­horf karl­rembna breyt­ast þegar þeir eign­ast dætur „Þá finna þeir á eigin skinni hve mikið lægri launin eru, verri æfingatímar, verri fótboltavellir,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tveir neit­uðu sök en ekki næst í þann þriðja í Höfða­torgs­máli Tveir sakborningar í Höfðatorgsmálinu mættu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur við þingfestingu. Sá þriðji er erlendis og næst ekki í hann. Sakborningarnir tveir neita sök. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Karlar og eldra fólk hlynnt­ara hval­veið­um 41% þjóðarinnar er andvíg veiðum á langreyðum en 33% eru hlynnt. Konur og yngra fólk er líklegra til að vera á móti hvalveiðum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Mikill vöxtur í tækni- og hug­verka­iðn­aði Brynjólfur Þór Guðmundsson Uppgangur var í tækni- og hugverkaiðnaði í vor. Tekjur af starfseminni námu tæplega 120 milljörðum króna í mars og apríl og höfðu þá aukist um tólf prósent milli ára. Verulegur vöxtur var í upplýsingatæknigreinum, sérstaklega í tengslum við rekstur gagnavera. Þar hátt í þrefaldaðist veltan. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar um veltu helstu atvinnugreina. Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina. Velta sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja jókst um 27 prósent. Aðra sögu var þó að segja af ferðaþjónustunni þar sem veltan dróst saman um sjö prósent. Gagnaver Verne í Reykjanesbæ. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Þriggja ára barn fannst látið í bif­reið Þrjú börn hafa fundist látin í bifreiðum í Frakklandi síðan hitabylgja hófst um helgina. Tugir hafa drukknað við að reyna að kæla sig. Hitametið var slegið tvisvar á þremur dögum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Ítalir og Íranar gagn­rýna orð Ruttes Framkvæmdastjóri NATO áréttaði stuðning bandalagsríkja í Evrópu við her Bandaríkjanna meðan á stríðinu í Íran stóð. Orð hans hafa farið öfugt ofan í ráðamenn á Ítalíu og í Íran. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Einn Frakk­anna státar sig af bíl­ferð­inni Einn frönsku ferðamannanna sem voru sektaðir fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina birti kort af bílferðum sínum um landið á síðu þar sem ferðalangar deila skemmtilegum leiðum t.d. sem hægt er að fara á torfærubíl, um allan heim. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Segir inn­flytj­e

Share this article