Innlent | mbl | 27.3.2026 | 9:11 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Á covid-árunum 2021 og 2022 var hallinn umtalsvert meiri eða 237 milljarðar fyrra árið og 236 hið síðara. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Skuldahlutfall ríkisins lækkað Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2018 Beint: Kynning á fjármálaáætlun 2027-2031 » Fleiri tengdar fréttir Uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 nemur um 830 milljörðum króna. Árin 2019, 2023 og 2024 var hallinn á bilinu 40 til 50 milljarðar ár hvert en á covid-árunum 2021 og 2022 var hallinn umtalsvert meiri eða 237 milljarðar fyrra árið og 236 hið síðara. Ári síðar dró nokkuð úr hallarekstri ríkissjóðs en hallinn nam þó 109 milljörðum króna. Hallarekstur ríkissjóðs tæplega tvöfaldaðist árið 2025 frá fyrra ári en á þessu ári er gert ráð fyrir umtalsvert minni hallarekstri eða halla sem nemur 25 milljörðum króna. Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 var kynnt í dag á fundi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti þá áform ríkisstjórnarinnar um s tigvaxandi afgang á fjárlögum frá og með næsta ári. Frétt af mbl.is Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Frétt af mbl.is Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% 170 milljarða hagræðing til 2031 Gert er ráð fyrir hagræðingaraðgerðum á þessu ári sem nema 11 milljörðum. Á næsta ári ríflega tvöfaldast þeirra vægi en þá er gert ráð fyrir aðgerðum sem nema 24 milljarða hagræðingu. Á árinu 2028 er gert ráð fyrir álíka fjárhæð eða 26 milljörðum króna en svo aftur bætt í árið 2029 þegar hagræðingaraðgerðir eiga að skila 34 milljörðum króna í ríkiskassann. Árið 2030 verða þeir 35 og 40 milljarðar árið 2031. Alls nema hagræðingaraðgerðir í fjármálaáætlun 170 milljörðum króna til ársins 2031. Útgjöld og tekjur ríkissjóðs frá árinu 2018 eru tíunduð í fjármálaáætluninni. Sem hlutfall af landsframleiðslu má sjá að það fór að halla undir fæti á árinu 2019 þegar útgjöld urðu meiri en tekjur. Á árinu 2020 stökk breyttist myndin en þá námu tekjur tæpum 28% af landsframleiðslu en útgjöld tæpum 36%. Ójafnvægið var álíka mikið árið eftir þegar tekjur námu um 27% af landsframleiðslu og útgjöld um 34%. Staðan fór þá heldur að jafnast og tekjur jukust hlutfallslega á meðan útgjöld drógust saman. Árið 2024 fóru útgjöld að aukast á ný og á síðasta ári stóðu þau nokkuð í stað en tekjur drógust saman. Á þessu ári, ef að líkum lætur, aukast tekjur á ný og nema um 30% af landsframleiðslu á meðan útgjöld dragast saman og verða tæp 31%. Frétt af mbl.is Fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2018 Á næsta ári munu svo tekjur samkvæmt fjármálaáætlun verða meiri en útgjöld og í kjölfarið verður dregið eilítið úr útgjöldum árlega til ársins 2031 á meðan tekjur standa nokkuð í stað. Þannig mun ríkisstjórnin ætla sér að mynda uppsafnaðan 80 milljarða króna afgang sem nýttur verður til að grynnka á skuldum ríkissjóðs. Skuldahlutfall ríkissjóðs er í dag 43,6% og mun verða það áfram á næsta ári ef fjármálaáætlun gengur eftir. Mun það lækka lítið eitt árið 2028 eða í 43,4% en á árinu 2029 og til ársins 2031 mun það stiglækka í 42,7% 2029, 41,8% 2030 og 40,8% 2031. Frétt af mbl.is Skuldahlutfall ríkisins lækkað Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 miðar að því að styrkja stoðir íslensks efnahagslífs með auknum aga og festu í ríkisfjármálum, eins og það er orðað í áætluninni. Hún markar skýr tímamót þar sem gert er ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári og skuldahlutfall hins opinbera taki að lækka markvisst á tímabilinu. Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin Skuldahlutfall ríkisins lækkað Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Fyrstu hallalausu fjárlögin síðan 2018 Beint: Kynning á fjármálaáætlun 2027-2031 » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Færist nær markametinu Netið springur útaf nýjum Harry Potter þáttum Páskaegg með heilsueflandi skilaboðum Jamaíka og Bólivía skrefi nær HM sæti Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Bubbi spáir hruni Spotify Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » 830 milljarða halli á ríkissjóði frá 2019 Færist nær markametinu Netið springur útaf nýjum Harry Potter þáttum Páskaegg með heilsueflandi skilaboðum Jamaíka og Bólivía skrefi nær HM sæti Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Fækka á stöðugildum hjá ríkinu um 1% Fólkaflokkurin sigraði í Færeyjum Geta ekki sagt „full og varanleg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Bubbi spáir hruni Spotify Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“