Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hallinn 340% meiri en í fjárlagafrumvarpi 2026

Read Full Article →

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp 2027 á mánudag. Samkvæmt því mun afgangur verða á rekstri ríkissjóðs á næsta ári upp á 4,7 milljarða króna. Er þetta í annað sinn sem Daði Már leggur fram fjárlagafrumvarp. Ríkisstjórnin tók við í desember 2024, eftir að fjárlög 2025 höfðu verið samþykkt. Þeim hefði ríkisstjórnin getað breytt hefði hún kosið það, enda eru fjárlögin almenn lög sem má breyta hvenær sem er. Í Viðskiptablaðinu í morgun fjallar Óðinn, fastur ritstjórnardálkur í blaðinu, um frávikið frá fjárlagafrumvarpinu fyrir þetta ár. Halli ríkissjóðs í ár stefnir í að verði rúmlega 340% meiri en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi ársins 2026 sem kynnt var 8. september 2025, eða 4,4 sinnum hærri en upphaflega var áætlað. Fjárlagafrumvarpið breytist að jafnaði töluvert í meðförum Alþingis. Haustið 2025 fór hallinn úr 15,3 milljörðum í 28,1 milljarð, eða tæplega tvöfaldaðist. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnir fjárlagafrumvarp 2026 fyrir rétt um ári síðan. © Morgunblaðið/Eggert (Morgunblaðið/Eggert) Í frumvarpinu fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir að hallinn næmi 0,3% af vergri landsframleiðslu. Í uppfærðu mati á afkomuhorfum ársins, sem birt er í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027, er hlutfallið komið í 1,3%. Útgjöldin 61,6 milljörðum meiri Í upphaflega frumvarpinu voru heildartekjur ríkissjóðs áætlaðar 1.591,2 milljarðar króna og heildargjöld 1.606,6 milljarðar. Nú eru tekjurnar áætlaðar 1.600,7 milljarðar en gjöldin 1.668,2 milljarðar. Tekjurnar eru því áætlaðar 9,4 milljörðum króna meiri en í frumvarpinu, en útgjöldin 61,6 milljörðum meiri. Aukin útgjöld vega þannig mun þyngra en hækkun tekjuáætlunarinnar og skýra að hallinn stefnir í að verða 52,2 milljörðum meiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Vaxtagjöldin hækka um 24,6 milljarða Vaxtagjöld ríkissjóðs eru nú áætluð 168,9 milljarðar króna, samanborið við 144,3 milljarða í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2026. Munurinn nemur 24,6 milljörðum króna. Fjármálaráðuneytið rekur aukin vaxtagjöld til meiri verðbólgu en spáð hafði verið, sem leiðir til aukinna verðbóta á verðtryggð lán, auk hærra vaxtastigs. Sjá einnig Fjár­lög 2027: Stór­kost­legt af­rek vinstri­stjórnarinnar

Share this article