Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gera ráð fyrir 67,5 milljarða halla í ár

Read Full Article →

Afkomuhorfur ríkissjóðs hafa versnað á yfirstandandi ári og er útlit fyrir að ríkissjóður verði rekinn með 67,5 milljarða króna halla í ár. Heildarafkoma ríkissjóðs verði þannig neikvæð um rúmlega 39 milljarða króna umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlögum 2026. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 sem fjármálaráðherra kynnti í morgun. Í fjárlögum fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir 28,1 milljarðs króna halla, eða um sem nemur 0,5% af VLF en nú er áætlað að afkoman verði neikvæð um 1,3% af VLF. Heildartekjur eru áætlaðar 1.601 milljarður, sem er tæplega 8 milljörðum umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlögum, en heildarútgjöld eru áætluð 1.668 milljarðar, sem er 47 milljarða aukning. Þar af er áætlað að vaxtagjöld verði 21 milljarði króna meiri, sem má samkvæmt frumvarpinu rekja til aukinna verðbóta, samhliða meiri verðbólgu en spáð hafði verið, auk hærra vaxtastigs. Frumgjöld eru áætluð um 27 milljörðum króna umfram fjárlög, sem skýrist meðal annars af auknum útgjöldum Sjúkratrygginga Íslands. Miðað við þróun útgjalda á fyrri helmingi ársins 2026 er gert ráð fyrir að útgjöld stofnunarinnar verði um 12 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Útgjöld stærri tilfærslukerfanna eru einnig áætluð um 12 milljörðum umfram áætlun fjárlaga, einkum vegna ellilífeyris, fæðingarorlofs og endurhæfingarlífeyris. Þá stefnir í að rekstur Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni verði samtals um 11 milljörðum umfram áætlun. Samkvæmt frumvarpinu mun þó draga úr þessu fráviki síðar á árinu þegar færðar verða viðbótarfjárheimildir af almennum varasjóði vegna kjarasamninga lækna, enda vegi launagreiðslur þungt í rekstri þessara stofnana. Enn er þó gert ráð fyrir áframhaldandi rekstrarhalla hjá þessum stofnunum, meðal annars vegna þess að framkvæmd áformaðra hagræðingarverkefna hefur gengið hægar en vonir stóðu til. „Meðal annarra frávika á gjaldahlið eru endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, niðurgreiðslur á húshitunarkostnaði og útgjöld vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd. Nánar verður fjallað um þessi og önnur mál í fjáraukalagafrumvarpi að hausti. Á móti útgjaldaauka vegna ofangreindra mála vega að hluta fjárheimildir almenna varasjóðsins og lægri útgjöld en áætlað var vegna nokkurra liða. Þar á meðal eru framkvæmdir við byggingu nýs Landspítala, styrkir til nýsköpunarfyrirtækja og stofnframlög vegna byggingar félagslegra leiguíbúða sem hafa gengið út hægar en áætlað var,“ segir í frumvarpinu.

Share this article