Samþykkt var á norska stórþinginu í gær lækkun á eldsneytisgjöldum og tímabundið afnám veggjalda og kolefnisgjalda á atvinnulífið, þar á meðal útgerðir landsins, í ljósi mikilla eldsneytishækkana vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Samþykkt þingsins var í andstöðu við vilja minnihlutastjórnar ríkisstjórnarflokkanna. Samþykkt þingsins mun þýða lækkun á bensíni um 4,7 norskar krónur á lítrann, tæpar 62 ÍSK, og 2,85 NOK á dísilolíu, 36,7 ÍSK. Lækkunin tekur gildi strax 1. apríl næstkomandi. „Ég er mjög ánægður með að meirihluti Stórþingsins samþykkti einnig að afnema CO2-skattinn fyrir fiskiskipaflotann, þótt tímabundið sé. Þetta er mál sem Fiskebåt hefur barist fyrir,“ segir Christian Halstensen, stjórnarformaður Fiskebåt, samtaka útgerða í Noregi. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur á skömmum tíma næstum tvöfaldað verð á olíu fyrir fiskiskipaflotann í Noregi. Verðhækkunin skapar veruleg lausafjárvandamál hjá mörgum fiskiskipaútgerðum. Þetta hefur leitt til þess að fiskveiðar margra útgerða eru að verða óarðbærar, að mati Halstensen. Olíuverð fyrir flotann hefur á skömmum tíma hækkað úr sex NOK á lítrann í rúmar 11 NOK, úr 77 ÍSK í 142 ÍSK. Þar að auki bætist við kolefnisgjald upp á 4,42 NOK á lítrann, 57 ÍSK, sem nú verður afnuminn. Halstensen segir að skattalækkanir fyrir fiskiskipaflotann leiði í raun til minnkunar á losun gróðurhúsalofttegunda. Sumir hafa lýst áhyggjum af því að lækkun skatta muni leiða til aukinnar losunar. Ég get vullvissað ykkur um að þetta á ekki við um fiskiskipaflotann. Þvert á móti sýna útreikningar að losun gróðurhúsalofttegunda frá okkar flota mun minnka um 80.000 tonn af CO2 vegna þess að flotinn mun nú fylla á tankana í Noregi en ekki sigla langar leiðir til erlendra hafna til gera það og til að geta veitt fisk á jafnfréttisgrundvelli við ESB-flotann,“ segir Halstensen. Hann segir að þetta muni einnig stuðla að aukinni löndun fisks til vinnslu heima fyrir. Afnám kolefnisgjalda muni einnig tryggja stöðu birgðastöðva meðfram strönd Noregs á varhugaverðum tímum þar sem viðbúnaðar er þörf fyrir utanaðkomandi atburðum.