Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjárfesta í Bretlandi í skiptum fyrir hærra lyfjaverð

Read Full Article →

Bandaríska lyfjafyrirtækið Eli Lilly, sem framleiðir meðal annars megrunarlyfið Mounjaro, hefur gefið til kynna að það sé tilbúið að hefja fjárfestingar í Bretlandi á ný, að því gefnu að bresk stjórnvöld samþykki hærra lyfjaverð innan NHS-kerfisins. Á vef Guardian segir að fyrirtækið fari einnig fram á að stjórnvöld felli niður endurgreiðslukerfi en forseti alþjóðasviðs hjá Eli Lilly, Patrik Jonsson, segist bjartsýnn á að mögulegt samkomulag náist nú í sumar. Fjölmörg bandarísk lyfjafyrirtæki hafa þrýst á bresk stjórnvöld um að hækka lyfjaverð en ríkisstjórn Keirs Starmers samþykkti fyrstu verðhækkun innan NHS í 27 ár. Eli Lilly var meðal þeirra fyrirtækja sem frestuðu eða jafnvel hættu við fjárfestingar í Bretlandi á síðasta ári. Ákvörðunin hafði einnig áhrif á uppbyggingu rannsóknarseturs í miðborg London.

Share this article