Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíurisi segir Bret­land orðið „ófjár­festingar­hæft“

Read Full Article →

Forstjóri eins rótgrónasta fyrirtækis Bretlands í orkuiðnaði segir að fyrirtækið hyggist aldrei fjárfesta í Bretlandi aftur. Jim Johnson, forstjóri Hunting, segir í viðtali við The Telegraph að Bretland sé orðið „ófjárfestingarhæft“ og varaði forsætisráðherrann Andy Burnham við því að óraunhæft væri að endurreisa gas- og olíuiðnað í landinu vegna íþyngjandi skattaumhverfis og ófyrirsjáanlegra ákvarðana stjórnvalda. Ummælin fylgja í kjölfar þess að Hunting, sem er eitt elsta fyrirtækið í Kauphöllinni í London, sagði upp tugi starfsmanna og lagði niður um 80% af starfsemi sinni í Bretlandi í fyrra. „Staðreyndin er sú að Bretland er orðið ófjárfestingarhæft. Allt sem stjórnmálamenn ykkar hafa gert hefur sýnt mér að við getum ekki treyst þeim. Hvers vegna ætti ég þá að ráðast í stóra fjárfestingu hér? Það mun aldrei gerast – Bretland er orðið verri fjárfestingarkostur en Venesúela.“ Í umfjölluninni er bent á að orkufyrirtæki með starfsemi í Norðursjó hafa búið við krefjandi skattaumhverfi eftir að Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, lagði á 38% hvalrekaskatt á olíu- og gasvinnslu. Ríkisstjórn Verkamannaflokksins hækkaði skattinn síðar enn frekar, upp í 78%. Þá innleiddi fyrrveradni orkumálaráðherra Bretlands, Ed Miliband, bann við nýjum borunum á svæðinu. Burnham er nú sagður undir þrýstingi að liðka fyrir orkustarfsemi í Norðursjó þar sem stríðið í Íran hefur varpað ljósi á hversu mikið þjóðin er háð innflutningi á gas- og olíu. Samráðsferli um framtíð Rosebank olíusvæðisins, stærsta vannýtta svæðið í Norðursjó, lýkur í vikunni. Eins er beðið eftir ákvörðun um vinnsluleyfi á Jackdaw olíuvinnslusvæðinu. Johnson sagði að óvissa meðal fjárfesta í orkuiðnaðinum hafi aukist í ljósi þess að stjórnvöld hafa enn sem komið er ekki veitt grænt ljós á olíuvinnslu á þessum svæðum. „Þessi tvö svæði voru uppgötvuð fyrir meira en 20 árum síðan. Sem olíufyrirtæki, ertu tilbúið að bora og verja fjármunum í verkefnið, vitandi að eftir 20 ár ertu mögulega enn ekki búinn að fá eina einust krónu til baka af fjárfestingunni?“ spurði Johnson og bætti við að hann sjái ekki fyrir sér að Bretlandi verði vaxtarsvæði á ný í ljósi stefnumótunar stjórnvalda. „Ég ber þetta gjarnan saman við Noreg, sem elskar olíu og gas. Norðmenn skilja hvaða áhrif þessi atvinnugrein hefur á ríkissjóð landsins. Við höfum einfaldlega gefið upp alla von varðandi Bretland.“ Hunting, sem er með markaðsvirði upp á 600 milljónir punda eða 100 milljarða króna, var stofnað árið 1874. Fyrirtækið framleiðir háþrýstirör fyrir olíu- og gasborholur neðansjávar.

Share this article