Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 6,1% í febrúar samkvæmt tölum Hagstofunnar en þar segir að gistinætur hafi alls verið tæplega 392.000 á landsvísu. Til samanburðar voru þær um 369 þúsund í febrúar 2025. Fjölgunina mátti nær alfarið rekja til aukinna gistinátta af hálfu Kínverja en kínverska nýárið gekk í garð þann 17. febrúar. Kínverska nýárið, eða vorhátíðin, er vinsælt ferðamannatímabil meðal Kínverja og nota margir tækifærið til að ferðast til útlanda. Hagstofan segir að fjölgunin hafi verið sérstaklega mikil á Suðurlandi en þar fjölgaði gistinóttum um rúm 16.000, eða 17,9% milli ára. „Í öðrum landshlutum var einnig aukning á fjölda gistinátta að undanskildum Suðurnesjum þar sem gistinóttum á hótelum fækkaði um 7,5%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum var 13,3% aukning og 10,6% á Norðurlandi. Þá var 21,3% aukning á Austurlandi en á höfuðborgarsvæðinu jókst fjöldinn aðeins lítillega eða um 1,9% (tæplega 4.000 gistinætur). Alls fjölgaði gistinóttum um tæplega 23.000 á milli ára.“ Sjá einnig Töluverð fækkun gistinótta í desember Gistinætur erlendra ferðamanna voru jafnframt um 352.000, eða 90% af gistinóttum hótela, og var það 6,7% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 39.000 sem var 0,7% meira en í febrúar árið 2025.