Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gistinætur Kínverja jukust um 36%

Read Full Article →

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 2,8% í nýliðnum mars samkvæmt tölum Hagstofunnar um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 432.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 420.000 á sama tíma árið 2025. Á vef Hagstofunnar segir að gistinóttum á hótelum hafi því alls fjölgað um tæplega 12 þúsund á milli ára. Mest var aukningin á Suðurlandi þar sem fjöldi gistinátta jókst um ríflega 13.500, eða 12,6%, en þá fjölgaði gistinóttum einnig um 7,9% á Suðurnesjum. Í öðrum landshlutum var hins vegar fækkun. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði þeim um 10,1%, á Austurlandi um 6,9% og á Norðurlandi um 5,8%. Litlar breytingar voru á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fækkaði um 0,1%. Sjá einnig Gistinóttum fjölgaði um 6,1% í febrúar Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 385.000, eða 89% af gistinóttum hótela, og var það 4,9% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 47.000 sem var 11,4% minna en í mars árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 97 þúsund og fækkaði þeim um 12,9% á milli ára. Aftur á móti fjölgaði gistinóttum Breta um 13,9% og Kínverja um 36,3%. „Framboð hótelherbergja jókst um 2,6% á landinu í mars. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Suðurlandi eða um 15,9%. Á höfuðborgarsvæðinu var lítilsháttar aukning eða um 1,9%. Í öðrum landshlutum fækkaði fjölda hótelherbergja og dróst framboðið mest saman á Austurlandi, um 22,4%. Á Suðurnesjum fækkaði herbergjum um 5,4%, á Vesturlandi og Vestfjörðum um 4,8% og á Norðurlandi um 2,6%.“ Alls voru 175 hótel starfandi í mars 2026 með 12.353 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 172 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 58 hótel með alls 5.659 herbergi og 54 á Suðurlandi með 3.192 herbergi.

Share this article