Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gistinóttum fjölgar um 0,9% milli ára

Read Full Article →

Gistinóttum á hótelum á Íslandi fjölgaði um 0,9% í maí miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru skráðar um 432 þúsund gistinætur á hótelum en á sama tíma dróst heildarfjöldi gistinátta á öllum skráðum gististöðum saman um 1,9% og nam rúmlega 713 þúsund. Mest fjölgaði gistinóttum á hótelum á Suðurlandi, um 15,2%, og á Norðurlandi, um 6,3%. Mestur samdráttur mældist á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinóttum fækkaði um 15,8%. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 87% gistinátta á hótelum í maí. Gistinætur þeirra jukust um 1,8% milli ára en gistinætur Íslendinga drógust saman um 4,4%. Bandaríkjamenn áttu flestar gistinætur, rúmlega 125 þúsund, en fækkaði um 2,5% milli ára. Gistinóttum Breta fækkaði um 12,7% en á móti fjölgaði gistinóttum Þjóðverja um 13,5%, Frakka um 11,4% og Kínverja um 40,4%. Framboð hótelherbergja jókst um 2,1% á landsvísu og starfandi hótelum fjölgaði úr 178 í 181. Á sama tíma dróst herbergjanýting saman um 1,3% og var mesta nýtingin á Suðurnesjum, 67,1%, og á höfuðborgarsvæðinu, 66,6%. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur fjöldi gistinátta á hótelum aukist um 0,5% frá sama tímabili í fyrra.

Share this article