„Svona virkar heimurinn núna,“ sagði hnefaleikakonan Erika Nótt Einarsdóttir í Morgunútvarpinu á Rás 2. Erika Nótt æfir nú af kappi fyrir fyrsta atvinnumannabardagann sinn en það ætti að koma fljótlega í ljós hvenær hann fer fram og hverri hún mætir. Erika hefur nýtt samfélagsmiðla til að koma sér á framfæri en hundruð þúsunda fylgja henni á TikTok og Instagram. Hún þakkar vinsældum sínum þar fyrir tækifæri sem hún hefði ekki fengið án þeirra. Hlustaðu á viðtalið við Eriku Nótt í spilaranum hér fyrir ofan. Erika játar að hún hafi fengið alls konar viðbrögð við því sem hún birtir á samfélagsmiðlum, bæði jákvæð og neikvæð. „Svo skiptir svo ógeðslega litlu máli hvað fólk er að segja. Það skiptir í alvöru engu máli fyrir mig og ég er bara þakklát fyrir alla sem segja eitthvað gott og eru næs.“